Til að bregðast við stöðu á biðlistum eftir leikskólaplássum hefur sveitarfélagið samþykkt fimm liða aðgerðaráætlun til stuðnings barnafjölskyldum. Meðal aðgerða er hækkun heimgreiðslna til foreldra og aukinn stuðningur við dagforeldrakerfið.
Sumarið er senn á enda og með haustinu færist daglegt líf smám saman aftur í sinn vanagang. Skólarnir eru að hefjast, sumarleyfum að ljúka og mörg þeirra verkefna sem unnið hefur verið að í sumar fara nú að taka á sig skýrari mynd.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum 25. ágúst ráðningu Marinós Stefánssonar í starf sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs. Marinó mun hefja störf hjá sveitarfélaginu 1. október nk.
Eitt dagforeldri er nú starfandi í sveitarfélaginu en þörf er á fleiri dagforeldrum í stækkandi samfélagi. Sveitarfélagið Vogar vill því hvetja áhugasama til að kynna sér þau tækifæri og þann stuðning sem stendur þeim til boða sem vilja gerast dagforeldrar í sveitarfélaginu.
Eftir innritun barna í Heilsuleikskólann Suðurvelli núna í haust er 13 börn, 18 mánaða og eldri, á biðlista eftir leikskólaplássi í Sveitarfélaginu Vogum.