
Til að bregðast við stöðu á biðlistum eftir leikskólaplássum hefur sveitarfélagið samþykkt fimm liða aðgerðaráætlun til stuðnings barnafjölskyldum. Meðal aðgerða er hækkun heimgreiðslna til foreldra og aukinn stuðningur við dagforeldrakerfið.
Á fundi bæjarráðs þann 25. ágúst sl. var samþykkt að hækka heimgreiðslur og niðurgreiðslur til dagforeldra vegna barna eldri en 18 mánaða sem eru á biðlista eftir leikskólaplássi. Hækkanirnar taka gildi frá og með 1. september 2026.
Niðurgreiðslur til dagforeldra hækka úr 129.600 kr. í 149.585 kr. á mánuði, miðað við átta tíma vistun.
Heimgreiðslur til foreldra hækka úr 129.600 kr. í 150.000 kr. á mánuði.
Heimgreiðslur eru greiddar eftir á og mun því fyrsta greiðsla samkvæmt nýju fjárhæðinni berast þann 30. september næstkomandi.
Haft hefur verið samband við foreldra allra barna, 18 mánaða og eldri, sem eru á biðlista eftir leikskólaplássi og þeim kynntar þær breytingar sem nú hafa verið samþykktar.