Sveitarfélagið Vogar býður upp á leikja- og ævintýranámskeið fyrir börn í sumar.
Leikjanámskeiðin eru ætluð fyrir börn fædd 2018 og 2019 og í ágúst geta börn fædd 2020 bæst í hópinn.
Námskeiðin eru allan daginn (08:00 - 16:00) og hægt að kaupa hádegisverð frá Skólamat.
Ævintýranámskeið eru fyrir börn fædd 2016 og 2017, þau eru hálfan daginn (08:00 - 12:00) og eru meira krefjandi. Mikilvægt er að börnin mæti með nesti og séu klædd eftir veðri.
Leikja- og ævintýranámskeið 2026
Skráning á leikja- og ævintýranámskeið 2026
