
Einn merkilegasti náttúruatburður síðari ára verður þegar almyrkvi verður sýnilegur yfir Íslandi miðvikudaginn 12. ágúst 2026.
Þetta verður í fyrsta sinn frá árinu 1433 sem almyrkvi sést á Íslandi. Næsti almyrkvi sem verður sýnilegur hér á landi verður ekki fyrr en 26. maí 2245.
Almyrkvaslóðin nær yfir allan Reykjanesskaga sem gerir svæðið að einum besta stað landsins til að upplifa þennan einstaka atburð. Gert er ráð fyrir að mikill fjöldi fólks komi á Reykjanesið til að upplifa almyrkvann og er undirbúningur vegna atburðarins hafinn hjá sveitarfélaginu og viðbragðsaðilum á svæðinu.
Á þessari síðu verður safnað saman helstu upplýsingum um almyrkvann og þann undirbúning sem mun fara fram hjá Sveitarfélaginu Vogum.
Síða þessi verður uppfærð reglulega og eru íbúar hvattir til að fylgjast með uppfærslum.
Hvenær sést almyrkvinn í Sveitarfélaginu Vogum?
Hér í Vogum stendur almyrkvinn yfir í um 1 mínútu og 32 sekúndur. Lengd deildarmyrkva verður 2 klst og 37 sekúndur.
Örugg augu
Gríðarlega mikilvægt er að nota öryggisvottuð sólmyrkvagleraugu þegar horft er á sólmyrkva. Þannig er hægt að koma í veg fyrir augnskaða, sem í verstu tilfellum getur verið varanlegur.
Sveitarfélagið Vogar gaf öllum nemendum Stóru-Vogaskóla sólmyrkvagleraugu við skólaslit í júní sl. en hægt er að kaupa gleraugu af Ungmennafélaginu Þrótti í Íþróttamiðstöðinni Vogum að Hafnargötu 17 og kosta þau 500 kr.
Umferð og öryggi
Vatnsleysustrandarvegur (420) verður lokaður í aðra áttina, þ.e.a.s. ekið er frá Vogum inn á Vatnsleysuströnd.
Íbúar við Vatnsleysuströnd eru sérstaklega beðnir um að hafa það í huga og gera ráðstafanir við sína afleggjara er varðar lokanir fyrir bílaumferð.
Götulýsing
Til að raska ekki upplifun af almyrkvanum verður götulýsing og önnur lýsing á vegum sveitarfélagsins slegin út. Íbúar eru sérstaklega beðnir um að huga að sjálfvirkri lýsingu við sín heimili sem gæti truflað sjónarspilið.
Safnstaðir
Sveitarfélagið Vogar hefur skilgreint safnstaði þar sem gert er ráð fyrir að íbúar og gestir geti komið saman til að fylgjast með myrkvanum.
Safnstaðirnir eru valdir vegna þess að þar eru nauðsynlegir innviðir til staðar, svo sem nálægð við bílastæði, aðgengi að salernum og neysluvatni.
Íbúar eru hvattir til að njóta almyrkvans heima hjá sér eða í sínu nærumhverfi ef aðstæður leyfa. Þó er gert ráð fyrir að margir vilji fylgjast með atburðinum í sameiningu og því verða eftirfarandi safnstaðir opnir.
Kaffisala
Kaffisala verður í Tjarnarsal á milli klukkan 13:00 og 16:00. Íboði verður kaffi og gos, vöfflur og kleinur.
Söfnunarstaðir:
Aðrir ákjósanlegir staðir til að fylgjast með almyrkva:
Salernisaðstaða
Bílastæði fyrir gesti

Verum vel undirbúin og förum varlega
Upplýsingavefir um sólmyrkvann
Tengiliðir
Ef þið hafið einhverjar spurningar eða ábendingar varðandi atburðinn þá er hægt að hafa samband við Ástu Maríu, verkefnastjóra
s: 868-0550/netfang: astamaria@vogar.is