
MÁLEFNASAMNINGUR MEIRIHLUTANS 2026–2030
Bæjarfulltrúar D-lista Sjálfstæðisflokks og óháðra, E-lista Strandar og Voga og
L-lista Lista fólksins hafa komist að samkomulagi um samstarf á kjörtímabilinu
2026–2030.
Samstarfið byggir á breiðum og sterkum grunni sem lagður var á liðnu
kjörtímabili. Meirihlutinn mun horfa fram á veginn með áherslu á traustan
rekstur, öfluga þjónustu, skýra forgangsröðun og áframhaldandi uppbyggingu
sveitarfélagsins í góðu samtali við íbúa.
Lögð verður áhersla á gott samstarf kjörinna fulltrúa, nefndarmanna,
starfsfólks sveitarfélagsins, íbúa, félagasamtaka og atvinnulífs. Jafnframt
verður unnið að auknu gagnsæi, betri upplýsingagjöf og vönduðu vinnulagi í
stórum málum sem varða framtíð sveitarfélagsins.
Málefnasamningur meirihlutans 2026-2030 í rafrænu flettiriti