Frá bæjarstjóra

Kæru íbúar,

Sumarið er senn á enda og með haustinu færist daglegt líf smám saman aftur í sinn vanagang. Skólarnir eru að hefjast, sumarleyfum að ljúka og mörg þeirra verkefna sem unnið hefur verið að í sumar fara nú að taka á sig skýrari mynd.

Einn af hápunktum sumarsins var án efa 30 ára afmæli Fjölskyldudaga. Veðrið lék við okkur, dagskráin var glæsileg og bærinn iðaði af lífi.

Fjölskyldudagar verða þó ekki til af sjálfu sér. Fjöldi fólks leggur hönd á plóg, bæði við undirbúning og framkvæmd, og ég vil þakka öllum sem lögðu sitt af mörkum, starfsfólki sveitarfélagsins, félagasamtökum, fyrirtækjum, sjálfboðaliðum og öllum þeim sem mættu og tóku þátt. Þið gerðuð 30 ára afmælið einstaklega eftirminnilegt og gáfuð okkur gott tilefni til að hlakka strax til næstu hátíðar að ári.

Á Fjölskyldudögum gafst okkur líka tækifæri til að fagna góðum árangri unga fólksins okkar. Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan árangur í námi og afreksfólk sveitarfélagsins heiðrað fyrir framúrskarandi árangur. Þar á meðal eru fjórir heimsmeistarar í dansi, hvorki meira né minna! Það var virkilega gaman að fá að fagna þessu unga fólki og þeim metnaði og dugnaði sem liggur að baki árangrinum.

Það er líka mikilvægt að unga fólkið okkar fái ekki aðeins tækifæri til að skara fram úr, heldur einnig til að hafa áhrif á samfélagið sitt. Nú leitum við að áhugasömu ungu fólki til þátttöku í Ungmennaráði sveitarfélagsins, þar sem sjónarmið ungmenna fá að heyrast og þau geta haft áhrif á mál sem þau varða.

Börnin okkar og skólastarfið

Nú í upphafi nýs skólaárs eru tvær jákvæðar breytingar sem mig langar sérstaklega að draga fram.

Í fyrsta sinn býður sveitarfélagið nemendum grunnskólans upp á gjaldfrjáls námsgögn. Það er jákvæð breyting sem léttir undir með fjölskyldum og stuðlar að auknu jafnræði barna.

Þá er starfsemi frístundaheimilisins færð niður í skólann. Með því er ætlunin að búa betur um starfsemina, bæta aðstöðu barna og starfsfólks og skapa betri samfellu í skóladegi barnanna.

Samhliða þessu hefur mikil vinna farið í leikskólamál. Unnið er að stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla og að framkvæmdum loknum verður leikskólinn sex deilda leikskóli. Undirbúningur útboðs stendur yfir en verkefnið hefur stækkað frá upphaflegum áformum og því þarf framkvæmdin að fara í útboð.

Það mun tefja verklok frá því sem áður var gert ráð fyrir og nú er stefnt að því að framkvæmdum ljúki í upphafi nýs árs. Það er seinna en við vildum og það eru vonbrigði. En við ætlum ekki að bíða aðgerðarlaus eftir að framkvæmdum ljúki.

Til að bregðast við stöðunni hefur sveitarfélagið samþykkt fimm liða aðgerðaráætlun til stuðnings barnafjölskyldum, meðal annars hækkun heimgreiðslna og stuðning við dagforeldrakerfið.

Ég hef jafnframt haft samband við foreldra allra barna 18 mánaða og eldri sem eru á biðlista eftir leikskólaplássi. Það hafa verið góð og mikilvæg samtöl. Ég ber mikinn skilning á þeirri stöðu sem margar fjölskyldur eru í og legg ríka áherslu á að sveitarfélagið leiti allra raunhæfra leiða til að mæta henni eins vel og kostur er.

Góður vinnustaður – góð þjónusta

Eitt af verkefnum sumarsins hefur verið að styrkja stjórnsýslu sveitarfélagsins. Nú hefur verið gengið frá ráðningu Marinós Stefánssonar sem sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs. Marinó kemur til okkar frá Austurlandi og hefur störf í byrjun október. Ég hlakka mikið til samstarfsins og bið ykkur um að taka vel á móti honum.

Við höfum líka verið að horfa inn á við. Bæjarráð samþykkti nýverið gæða- og umbótaáætlunina „Sveitarfélagið Vogar – góður vinnustaður, góð þjónusta“. Sveitarfélagið er stærsti vinnustaðurinn í Vogum og um leið fyrst og fremst í þjónustu við íbúa og fyrirtæki. Við berum því ríka ábyrgð, bæði sem vinnuveitandi og þjónustuaðili. Margt er vel gert og á því eigum við að byggja. Gæða- og umbótavinnan snýst um að styrkja stjórnun, mannauð og þjónustu og vinna markvisst að því sem gera má betur.

Sama krafa á við um innviðina okkar. Vatnsgæðin reyndu aðeins á okkur í sumar þegar kólígerlar greindust í sýnum úr dreifikerfi neysluvatnsins. Um leið og niðurstöðurnar lágu fyrir var sýnataka aukin og fylgst sérstaklega með stöðunni í samstarfi við HS Veitur og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja. Síðari sýni voru innan viðmiðunarmarka og staðan er nú eðlileg.

Þetta var minniháttar frávik en ágæt áminning. Grunninnviðir eins og vatnsveita, fráveita og samgöngur eiga einfaldlega að virka og við þurfum að huga að ástandi þeirra og áfallaþoli til langs tíma.

Tækifæri til uppbyggingar

Í haust verður umræða um uppbyggingu og atvinnumál fyrirferðamikil. Ég finn fyrir auknum áhuga á uppbyggingu í sveitarfélaginu og til okkar leitar fólk með hugmyndir að nýrri starfsemi, þjónustu og uppbyggingu. Það eru góð tíðindi og þannig viljum við hafa það.

Ég vil að þeir sem sjá tækifæri í Sveitarfélaginu Vogum finni að hér sé tekið vel á móti góðum hugmyndum. Við eigum að veita skýra og skilvirka þjónustu og vera tilbúin að hlaupa hratt þegar þess þarf.

Eitt af stærri verkefnum haustsins verður að hefja vinnu við heildarskipulag hafnarsvæðisins. Þar eru að mínu mati vannýtt tækifæri og nú er rétti tíminn til að hefja samtalið um hvernig við viljum sjá svæðið þróast. Sú sýn verður best mótuð í góðu samtali.

Að lokum

Nú um helgina göngum við til þjóðaratkvæðagreiðslu um stórt og mikilvægt mál. Umræðan hefur sett svip sinn á sumarið og ekki síst síðustu vikur og daga. Skoðanir eru sterkar og það er í góðu lagi.

Við eigum að ræða málin, færa rök fyrir afstöðu okkar og að sjálfsögðu nýta kosningaréttinn. En mig langar líka að hvetja okkur öll til að huga að því hvernig við tölum hvert við annað. Við getum verið innilega ósammála og samt sýnt hvert öðru virðingu og skilning.

Við getum metið leiðirnar ólíkt en samt átt það sameiginlegt að vilja landinu okkar, samfélaginu og fjölskyldum vel. Rökræðum af krafti og stöndum með okkar sannfæringu. En virðingin fyrir hvert öðru má ekki verða fyrsta fórnarlamb umræðunnar.

Pössum upp á hvert annað.

Eigið góða síðustu sumardaga og farsælt upphaf haustsins.

Kær kveðja,

Björg Ásta Þórðardóttir
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga