Uppfærðar upplýsingar um neysluvatn í Vogum

Í kjölfar þeirrar kólígerlamengunar sem greindist í sýnum úr dreifikerfinu í Sveitarfélaginu Vogum fyrir nokkrum dögum var sýnataka aukin. Ný sýni voru tekin á miðvikudag og niðurstöður bárust síðdegis í gær.

Niðurstaðan var sú að engin mengun greindist í sýnunum og eru mælingar því innan viðmiðunarmarka.

Áfram verður fylgst sérstaklega með stöðunni í samráði við HS Veitur og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja, samhliða reglubundnu eftirliti með gæðum neysluvatns. Íbúar verða áfram upplýstir ef niðurstöður eftirlits gefa tilefni til.

Hér er hlekkur inn á vefsíðu sem heldur utan um niðurstöður úr sýnatökum á neysluvatni: https://www.hsveitur.is/um-hs-veitur/utgefid-efni/skjalasafn/neysluvatnssyni