Eftir innritun barna í Heilsuleikskólann Suðurvelli núna í haust er 13 börn, 18 mánaða og eldri, á biðlista eftir leikskólaplássi í Sveitarfélaginu Vogum. Eftirspurn eftir leikskólaplássum er því meiri en framboð um þessar mundir og sveitarfélagið vinnur að aðgerðum bæði til skemmri og lengri tíma til að bregðast við stöðunni.
Sveitarfélagið mun á næstu dögum hafa samband við alla foreldra sem eiga börn, sem eru 18 mánaða og eldri, á biðlista og fara yfir stöðuna með hverri fjölskyldu.
Aðgerðir til stuðnings barnafjölskyldum
Bæjarráð samþykkti í júlí að ráðist yrði í aðgerðir til stuðnings barnafjölskyldum vegna stöðunnar og hefur síðan verið unnið að nánari útfærslu þeirra, kostnaðarmati og framkvæmd. Þær aðgerðir eru;
Stefnt er að því að breytingar á heimgreiðslum og niðurgreiðslum vegna barna 18 mánaða og eldri hjá dagforeldrum taki gildi 1. september 2026. Endanleg útfærsla, fjárhæðir og kostnaðarmat verða lögð fyrir bæjarráð til afgreiðslu.
Unnið að stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla
Upphaflega var stefnt að því að taka nýja aðstöðu við Heilsuleikskólann Suðurvelli í notkun í september. Við nánari undirbúning og þarfagreiningu kom hins vegar í ljós að þörfin var meiri en upphaflega hafði verið gert ráð fyrir. Niðurstaðan var að ráðast í heildstæðari stækkun, þannig að leikskólinn verði sex deilda, samhliða því að bæta starfsmannaaðstöðu.
Með auknu umfangi verkefnisins breyttust jafnframt forsendur framkvæmdarinnar og ljóst varð að framkvæmdin er útboðsskyld. Nú er unnið að undirbúningi og gerð útboðsgagna með það að markmiði að framkvæmdir geti hafist eins fljótt og kostur er. Stefnt er að því að ný aðstaða verði tekin í notkun í ársbyrjun 2027.
Horft til framtíðar
Samhliða þarf að horfa lengra fram í tímann. Með áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins þarf að hefja undirbúning að byggingu nýs leikskóla til að tryggja að leikskólaþjónusta haldi í við íbúaþróun og framtíðarþarfir. Skipaður verður stýrihópur um verkefnið sem mun vinna að þarfagreiningu og undirbúningi næstu skrefa.
Áfram verður unnið að útfærslu aðgerðanna á næstu vikum og foreldrum veittar nánari upplýsingar eftir því sem ákvarðanir liggja fyrir.