Fyrsta messa vetrarins í Kálfatjarnarkirkju verður sunnudaginn 27. september kl. 14:00. Sr. Elínborg Gísladóttir settur prestur á Kálfatjörn sér um messuna.
Í ljósi þess að haustið er komið viljum við þakka öllum sem komu að starfi Vinnuskólans í sumar fyrir samstarfið. Þetta var svo sannarlega íslenskt sumar, en við fengum bæði frábæra sólardaga og úrhellisrigningu, og jafnvel haglél.
Fyrirhuguð er lokun á heitu vatni á Suðurnesjum miðvikudaginn 9. september vegna viðamikilla framkvæmda HS Veitna við stofnæð hitaveitu við Njarðarbraut og framkvæmda HS Orku við dælustöð á Fitjum.