Framkvæmdir við Stóru-Vogaskóla

Verið er að gera endurbætur við aðkomu að Stóru-Vogaskóla og verða tafir á næstu dögum. Unnið er hratt og örugglega, að teknu tilliti til veðurs.

Þeir sem aka í skólann eru beðnir um að fara sérstaklega varlega þar sem skólabörn eru bæði fótgangandi og á hjólum.

Við biðjum ykkur að sýna þolinmæði og tillitssemi á meðan framkvæmdum stendur.

- Umhverfisdeild