Nú eru fimm Hopp-hjól komin í notkun í Vogum og bætist þar með við nýr og umhverfisvænn samgöngumöguleiki fyrir íbúa og gesti.
Hjólin eru staðsett á þremur skilgreindum stoppistöðvum, við bæjarskrifstofurnar og við strætóskýlin beggja megin við Reykjanesbraut.
Staðsetningarnar við Reykjanesbraut eru sérstaklega valdar með það í huga að auðvelda tengingu við almenningssamgöngur og gera fólki kleift að nýta Hopp-hjólin til ferða milli strætóskýlanna og þéttbýlisins í Vogum.
Við minnum notendur á að fara varlega og sýna öðrum vegfarendum tillitssemi. Notið hjálm, aðlagið hraða að aðstæðum, gætið sérstaklega að gangandi vegfarendum og leggið hjólunum snyrtilega á merktar stoppistöðvar að ferð lokinni þannig að þau hindri ekki umferð eða aðgengi.
Hopp-hjólin eru skemmtileg viðbót við samgöngur í Vogum og vonum við að þjónustan nýtist vel.
Góða ferð og farið varlega!
