Í ljósi þess að haustið er komið viljum við þakka öllum sem komu að starfi Vinnuskólans í sumar fyrir samstarfið. Þetta var svo sannarlega íslenskt sumar, en við fengum bæði frábæra sólardaga og úrhellisrigningu, og jafnvel haglél.
Verkefni sumarsins voru fjölbreytt og það var slegið, rakað, sópað, skrapað, málað og unnið í beðum svo eitthvað sé nefnt. Hópurinn stóð sig vel yfir sumarið, og á lokasprettinum var mikið gert fyrir Fjölskyldudaga.
Í tilefni almyrkvans fékk Vinnuskólinn líka það verkefni að skreyta stór sólmyrkvagleraugu sem sett voru upp á Arahól. Í gleraugunum var dökkt gler svo hægt væri að horfa á sólmyrkvann í gegnum þau, en þegar á hólminn var ekki mikil þörf fyrir það.
Í júlí vorum við með fræðsludag þar sem fræðsluteymi Vinnuskóla Reykjanesbæjar kom og var með fræðslu um jákvæð samskipti, fyrstu skref út á atvinnumarkað og fleira gagnlegt. Við fengum líka heimsókn frá Guðbjörgu Kr. frá VSFK þar sem hún fjallaði um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Í lokin skipti hún öllum í hópa sem spreyttu sig á spurningum um efnið, og bauð upp á vinning fyrir sigurliðið.
Takk fyrir sumarið!
Bestu kveðjur,
Starfsfólk Vinnuskólans
Nokkrar myndir frá sumrinu:

Heimsókn frá Guðbjörgu Kr. frá Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur

Sólmyrkvagleraugun á Arahól

Þróttaragangbrautin við Íþróttamiðstöðina

Hin árlega skreytta gangbraut í tilefni af Hinsegin dögum
Nokkrar fyrir og eftir myndir af ýmsum verkefnum Vinnuskólans:

Útigrillið í skrúðgarðinum Aragerði fékk yfirhalningu

Beðin voru hreinsuð við leikskólann

Þessi brunahani orðinn eins og nýr