Eitt dagforeldri er nú starfandi í sveitarfélaginu en þörf er á fleiri dagforeldrum í stækkandi samfélagi. Sveitarfélagið Vogar vill því hvetja áhugasama til að kynna sér þau tækifæri og þann stuðning sem stendur þeim til boða sem vilja gerast dagforeldrar í sveitarfélaginu.
Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi en Sveitarfélagið Vogar gerir samninga við dagforeldra og niðurgreiðir vistunargjöld foreldra. Sveitarfélagið sinnir jafnframt lögbundnu eftirliti með starfseminni og veitir dagforeldrum og foreldrum ráðgjöf eftir því sem við á.
Réttindanámskeið í september
Til að öðlast réttindi sem dagforeldri þarf að sækja sérstakt réttindanámskeið. Sveitarfélagið styrkir einstaklinga sem vilja sækja námskeiðið með það að markmiði að hefja dagforeldrastarf í Sveitarfélaginu Vogum.
Næsta námskeið verður haldið hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) í september.
Nánari upplýsingar og skráning á námskeið MSS
Stuðningur við nýja og starfandi dagforeldra
Sveitarfélagið styður við þá sem hefja dagforeldrastarf með 200.000 kr. stofnstyrk og veitir starfandi dagforeldrum 100.000 kr. árlegan aðstöðustyrk til að styðja við góða og þroskavænlega aðstöðu fyrir börnin.
Gott faglegt samstarf er jafnframt meðal dagforeldra á Reykjanesi. Árlega er haldinn sameiginlegur starfsdagur dagforeldra á svæðinu þeim að kostnaðarlausu. Þá stendur dagforeldrum í Sveitarfélaginu Vogum til boða að taka þátt í starfsdögum Heilsuleikskólans Suðurvalla, þegar við á. Með því er stutt við faglegt starf og tengsl dagforeldra við leikskólann.
Hvernig gerist ég dagforeldri?
Sótt er um leyfi til dagforeldrastarfa hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV).
Upplýsingar og umsókn um leyfi sem dagforeldri
Um starfsemina gildir jafnframt reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum.
Hefur þú áhuga?
Ef þú hefur áhuga á að starfa sem dagforeldri hvetjum við þig eindregið til að stíga næsta skref og kynna þér tækifærin nánar. Þetta er tækifæri til að taka þátt í mikilvægu og gefandi starfi í vaxandi samfélagi.
Við hvetjum þig til að hafa beint samband við Heiðu Ingólfsdóttur (heida@sudurnesjabaer.is), sem veitir fyrir hönd sveitarfélagsins upplýsingar, ráðgjöf og leiðsögn um fyrstu skrefin. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á skrifstofa@vogar.is.