Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti 27. apríl 2022 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028 – Íbúðarsvæði ÍB-3-1 vestan Vatnsleysustrandarvegar, skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða er auglýst breyting á deiliskipulagi skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vinnuskólinn í sveitafélaginu Vogum býður upp á garðslátt í sumar fyrir 67 ára og eldri án endurgjalds.
Hægt er að panta slátt á vinnuskoli@vogar.is eða í síma 7770926 milli 8 og 15:45 á virkum dögum.
Í sól og sumaryl, ég sat einn fagran dag…
Hreinsunardagar í Vogum standa yfir dagana 24. maí – 3. júní.
Gámur fyrir garðaúrgang verða við tjaldsvæðið við Hafnargötu.
Íbúar Sveitarfélagsins Voga eru margir hverjir komnir á fullt skrið við að taka til hendinni við hús sín, lóðir og nærumhverfi. Á næstu dögum ætlum við að gera enn betur og taka höndum saman um að gera fallegan bæ snyrtilegan fyrir sumarið. Minnum á að: