Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur lokið aukaúthlutun styrkja fyrir árið 2026 og hlutu þrjú verkefni í Sveitarfélaginu Vogum samtals 3 milljónir króna í styrki. Úthlutunin er ánægjuleg áminning um
Mikil ánægja ríkti á fræðslukvöldinu Bestar á Breytó sem haldið var í Álfagerði í Vogum þann 19. maí síðastliðinn. Kvöldið var samstarfsverkefni Sveitarfélagsins Voga, verkefnissins Saman í samfélagi, GeoSilica og Röggu Nagla og vakti mikla athygli meðal kvenna á Suðurnesjum.
Föstudagskvöldið 8. maí fóru tuttugu ungmenni frá Vogum á SamFest 2026 í Laugardalshöll. Sex starfsmenn fylgdu hópnum og var farið saman með rútu til og frá viðburðinum. Ferðin gekk mjög vel og hópurinn var til fyrirmyndar.
Mánudaginn 18. maí nk. verða götur og gangstéttar í Vogunum sópaðar og til þess að það megi ganga sem best eru eigendur ökutækja beðnir um að reyna að leggja ekki á götunum þennan dag.
Þeir fjórir listar sem eru í framboði í Sveitarfélaginu Vogum bjóða til opins framboðsfundar fimmtudaginn 14. maí 2026 kl. 20:00 í Tjarnarsal, sal Stóru-Vogaskóla við Tjarnargötu 2.
Ungmennaþing UNGVOG var haldið föstudaginn 24. apríl síðastliðinn. Þingið var vel sótt en þar komu saman um 30 ungmenni frá 7.-10. bekk og 1. ári í framhaldsskóla til að ræða málefni sem skipta þau máli og fá tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri.