Föstudaginn 9. október kl. 14:30 verður haldinn opinn kynningarfundur í Álfagerði um Uppbyggingarsjóð SSS. Á fundinum fá íbúar tækifæri til að fræðast um umsóknarferlið og heyra af reynslu þeirra sem þegar hafa sótt í sjóðinn.
Um sjóðinn
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja er samkeppnissjóður sem styður við menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Suðurnesjum. Sjóðurinn auglýsir eftir umsóknum einu sinni á ári, að hausti, og eru þær metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Suðurnesja og í reglum sjóðsins.
Úthlutað er úr sjóðnum árlega, annars vegar til verkefna á sviði menningar, þar á meðal stofn- og rekstrarstyrkja, og hins vegar til atvinnu- og nýsköpunarverkefna.
Nú er opið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Suðurnesja vegna verkefna á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar fyrir árið 2027. Umsóknarfrestur er til 21. október 2026.
Dagskrá:
Heitt á könnunni og allir velkomnir.
Staðsetning: Þjónustumiðstöðin Álfagerði er staðsett við Akurgerði 25. Gengið er inn frá Suðurgötu, til móts við leikskólann.
