
Safnahelgi á Suðurnesjum er haldin árlega, uppfull af skemmtilegum uppákomum og viðburðum um allan Reykjanesskagann. Safnahelgi er samstarfsverkefni safna, setra og sýninga á Suðurnesjum sem opna dyrnar sínar fyrir íbúum og gestum svæðisins.
Dagskrá helgarinnar sem í ár er haldin 17. - 18. október verður fjölbreytt og skemmtileg fyrir alla fjölskylduna. Frítt er á öll söfn sem taka þátt.
Hér í Sveitarfélaginu Vogum eru eftirfarandi viðburðir á dagskrá:
Ratleikur um Vogana
Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar í samstarfi við Félagsmiðstöðina Boruna verður með ratleik í Vogum á safnahelgi. Hægt verður að njóta alla helgina.
Ratleikurinn byrjar á Arahól og leiðir svo hver staður til þess næsta. Kort sem sýnir staðsetningar má nálgast í Íþróttamiðstöðinni í Vogum.
Fimm staði þarf að heimsækja í ratleiknum og leysa þar litla þraut. Þrautirnar gefa bókstafi sem raða þarf saman. Útkoman er orð sem tengist Vogum – verðlaun verða í boði fyrir þrjá fyrstu á laugardeginum.
Vinninga má nálgast í Borunni til kl. 15 á laugardeginum.
Ljósmyndasýning í Kirkjuhvoli
Í Kirkjuhvoli verður lifandi ljósmyndasýning af mannlífinu í Vogum til 1990. Eyjólfur Guðmundsson var duglegur að festa mannlífið í Vogum á filmu og verður afrakstur hans sýndur undir léttu kaffispjalli í Kirkjuhvoli á Vatnsleysuströnd.
Opið verður laugardag og sunnudag kl. 13 til 16.
Skólaminjar í Norðurkoti
Skólaminjasafnið í Norðurkoti verður opið laugardag og sunnudag kl. 13 til 16. Lögð er áhersla á upplifun barna og fræðslu til þeirra. Ýmiskonar fróðleikur og skemmtilegir leikir fyrir fjölskylduna að sameinast í. Í Norðurkoti eru allskonar gömul leikföng, skóladót og annað sem gleður augað. Ratleikir í boði fyrir þá allra áhugasömustu. Tilvalin fjölskyldusamvera.
Norðurkot er staðsett á Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd.
Opið verður laugardag og sunnudag kl. 13 til 16.
Upplýsingar og dagskrá sem er í fullum undirbúningi eru hér á heimasíðu Safnahelgarinnar: https://www.safnahelgi.is/
Takið dagana 17.–18. október frá og njótið Safnahelgar á Suðurnesjum!