Yfirlitskort yfir göngustíga.
Í sumar verður haldið áfram að tengja byggðina saman með göngustíganeti (sjákort). Allir göngustígar verða malbikaðir og upplýstir.
Einnig verða settirupp bekkir á nokkrum stöðum við stígana.
Ársreikningur 2004 var afgreiddur í hreppsnefnd 11.maí.Hagnaður af rekstrisveitarfélagsins var 37,7 milljónir sem nokkur bati frá fyrra ári.Veltufjárhlutfallið var 2,57 en var árið 2003 1,15.
Á ráðstefnu á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldin var 1.apríl s.l., hlutu sex sveitarfélög á landinu viðurkenningu fyrir framsækni í starfi. Vatnsleysustrandarhreppur var eitt þeirra og hlaut viðurkenningu fyrir árangursríka innleiðingu á nýjum árangusstjórnunaraðferðum.
Gamla skólahúsið í Norðurkoti flutt
Gamla skólahúsið í Norðurkoti á Vatnsleysuströnd hefur verið flutt að Kálfatjörn.Þar verður það verður sett á grunn á fyrirhuguðu minjasvæði hreppsins og verður það gert upp í upprunalegri mynd.
Hulda Hrönn Agnarsdóttir tók þátt í sundmóti í Malmö sem haldið var þann 10.-14.febrúar 2005 ( Malmö Open ) og fékk styrkt til fararinnar af sveitarfélaginu.
Þann 15.febrúar var skrifað undir samstarfssamning við Trésmiðju Snorra Hjaltasonar ehf.um byggingu á 60 íbúðum í Vogum.Þessi samningur er upphafið að frekari útrás hreppsins en nú eru liðin rúmlega 5 ár frá markaðsátakinu "Vogar færast í vöxt".
Vatnsleysustrandarhreppur tilnefnt eitt af framsæknustu sveitarfélögum
landsins.
Hjá Sambandi íslenkra sveitarfélaga stendur til að veita framsæknum
sveitarfélögum viðurkenningu í hvatningaskyni á ráðstefnu í vor.
Vatnsleysustrandarhreppur er eitt af þrettán sveitarfélögum sem Sambandið
hefur tilnefnt.