Leikskólinn Suðurvellir er orðinn heilsuleikskóli
Þann 20.október sl.var haldin býsna fjölmenn hátíð í fjörunni í Vogum.
Tilefnið var að leikskólinn okkar er nú orðinn heilsuleikskóli. Námskrá leikskólans hefur verið uppfærð samkvæmt viðmiðum heilsustefnunnar og er nú hægt að nálgast hana hér á heimasíðunni.
Það var kveiktur varðeldur og sungið. Öllum Vogabúum var boðið að samgleðjast á þessum tímamótum og þiggja kakó, kleinur og flatkökur.
10. nóvember 2005
