Fréttir

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des

Hulda Hrönn

Hulda Hrönn Agnarsdóttir tók þátt í sundmóti í Malmö sem haldið var þann 10.-14.febrúar 2005  ( Malmö Open ) og fékk styrkt  til fararinnar af sveitarfélaginu.

"Vogar færast enn í vöxt"

Þann 15.febrúar var skrifað undir samstarfssamning við Trésmiðju Snorra Hjaltasonar ehf.um byggingu á 60 íbúðum í Vogum.Þessi samningur er upphafið að frekari útrás hreppsins en nú eru liðin rúmlega 5 ár frá markaðsátakinu "Vogar færast í vöxt".

Aragerði að vetrarlagi

Rafn Sigurbjörnsson ljósmyndari tók mjög skemmtilegar myndir úr Aragerði í byrjun ársins.Hér gefur að líta nokkrar af þeim myndum sem hann tók.

Fréttir frá sunddeild

Íris Ósk Hafsteinsdóttir er búin að ná lágmörkum á AMÍ (Aldursmeistaramót Íslands) en miðað er við 20.besta tímann á síðasta ári.

Framsækið sveitarfélag.

Vatnsleysustrandarhreppur tilnefnt eitt af framsæknustu sveitarfélögum landsins.  Hjá Sambandi íslenkra sveitarfélaga stendur til að veita framsæknum sveitarfélögum viðurkenningu í hvatningaskyni á ráðstefnu í vor. Vatnsleysustrandarhreppur er eitt af þrettán sveitarfélögum sem Sambandið hefur tilnefnt.

Mikil hækkun rafmagns.

Mikil hækkun á rafmagnsgjaldi vegna húshitunar á Ströndinni.   Hreppsnefnd Vatnsleysustrandarhrepps lýsir undrun sinni á miklum hækkunum á verði raforku til húshitunar frá sl.

JSÍ afmælismót

Júdódeild UMF Þróttar hafði veg og vanda að glæsilegu afmælismóti Júdósambandi Íslands um síðastliðna helgi.Mótið fór fram í Íþróttamiðstöðinni og öttu þar kappi um 100 kappar í öllum flokkum.

Fréttabréf á vefnum

Nú gefst lesendum þessa vefjar kostur á því að lesa Fréttabréf Vatnsleysustrandarhrepps á heimasíðunni.Búið er að setja inn öll Fréttablöð frá upphafi útgáfunnar.

Fjárhagsáætlun 2005

Fjárhagsáætlun 2005 var samþykkt í hreppsnefnd 4.janúar 2005.Í áætluninni er gert ráð fyrir óbreyttum rekstri.Varðandi fjárfestingar ergert ráð fyrir að setja Íþróttamiðstöðina inn í fasteignafélagið ogjafnframt að byggja við hana.

13ándagleði

Þrettándagleðin var haldin að venju þann 6.janúar.Það hefur tíðkast í þó nokkur ár að hreppsbúar klæði sig upp á og skarti hinum ýmsu gerfum, sem oft á tíðum eru hönnuð sérstaklega fyrir þennan dag.