Fréttir

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Útilífsskóli

Útilífsskóli

Vikuna 9.-13.júlí mun skátafélagið Hraunbúar standa fyrir útilífsskóla hér í Vogunum fyrir krakka á aldrinum 8-12 ára.Skólinn hefst kl 10:00 og lýkur um kl 16:00.  Í Útilífsskóla Hraunbúa er þátttakendum gefinn kostur á fjölbreyttri dagskrá og upplifun úti í náttúrunni, þar sem unnið er eftir markmiðum skátastarfsins; að þroska börn og ungt fólk til þess að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu.
Golfnámskeið í júní

Golfnámskeið í júní

Félagsmiðstöðin og Golfklúbbur Vatnsleysustrandar munu bjóða uppá  golfnámskeið í sumar.Kennt verður í tveimur hópum, yngri (4.-6.
Styrkveiting úr Afreksmannasjóði

Styrkveiting úr Afreksmannasjóði

Á fundi bæjarstjórnar í gær fór fram afhending á tveimur styrkjum úr Afreksmannasjóði Sveitarfélagsins Voga.Þetta er fyrsta sinn sem styrkir eru veittir úr sjóðnum, en tilgangur hans er að styrkja einstaklinga eða hópa sem skarað hafa framúr í íþróttagrein sinni á landsvísu.
Iðnaðarlóð laus til umsóknar

Iðnaðarlóð laus til umsóknar

Sveitarfélagið Vogar auglýsir lausa til umsóknar 4.995 m2 lóð í nýju iðnaðarhverfi við Vogaafleggjara.Lóðin er nr.5 við Heiðarholt og er byggingarhæf.Umsækjendur skulu í umsókn greina frá þeirri starfsemi sem fyrirhuguð er, og leggja fram tilboð í byggingarétt á lóðinni.
Tvö tilboð bárust í rekstur eldhúss fyrir Sveitarfélagið Voga

Tvö tilboð bárust í rekstur eldhúss fyrir Sveitarfélagið Voga

Sveitarfélagið Vogar hefur ákveðið að sameina matreiðslu heitra máltíða fyrir grunn- og leikskóla í Tjarnarsal sem staðsettur er við Stóru-Vogaskóla.
Gönguferðir í júní

Gönguferðir í júní

Gönguferðir Umhverfisnefndar halda áfram í júní.Tilgangur ferðanna er að kynnast umhverfi okkar og hafa áhrif á það til góðs.Allar göngurnar eru léttar. Nú verður oftast gengið þriðjudagskvöld til að rekast ekki á vinnukvöld Skógræktarfélagsins (þau eru á miðvikudögum í júní). Hvert Mæta hvenær Mæta hvar Hvað er að sjá? Um Brunnastaðahverfi Þri.
Ný dagmóðir

Ný dagmóðir

Ný dagmóðir hefur tekið til starfa í Vogum, Steinunn Björk Jónatansdóttir.Steinunn hefur stundað nám í uppeldis- og menntunarfræðum við Háskóla Íslands og hefur reynslu af störfum í leikskóla, bæði með fötluðum og ófötluðum börnum.  Sveitarfélagið Vogar niðurgreiðir gjöld hjá dagforeldrum samkvæmt gjaldskrá sveitarfélagsins hverju sinni.
Gjaldfrjálsar skólamáltíðir í Stóru- Vogaskóla

Gjaldfrjálsar skólamáltíðir í Stóru- Vogaskóla

Stóru- Vogaskóli kemur vel út úr könnun á verði á skólamat, en sem kunnugt tók bæjarstjórn ákvörðun um það síðastliðið sumar að skólamáltíðir skyldu vera gjaldfrjálsar.
Lokaball félagsmiðstöðva

Lokaball félagsmiðstöðva

Föstudaginn 18.maí var haldið sameiginlegt lokaball á vegum félagsmiðstöðvanna í Vogum, Sandgerði og Garði.Um 80 unglingar mættu á ballið þar sem dj Óli Geir þeytti skífum og gerði það frábærlega vel.
Sveitarfélagið Vogar fær styrk úr Þjóðhátíðarsjóði

Sveitarfélagið Vogar fær styrk úr Þjóðhátíðarsjóði

Sveitarfélaginu var í gær úthlutað 200.000 kr. styrk úr Þjóðhátíðarsjóði við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu.Styrkurinn er veittur til að sinna vettvangsskráningu minja í sveitarfélaginu sem eru í hættu vegna sjávarrofs.  Í Vatnsleysustrandarhreppi var um aldir þétt byggð útvegsbúskapar meðfram ströndinni.