Í dag var sett af stað verkefnið Hingað og ekki lengra, en það er áhugafólk um bætta umferðarmenningu á Suðurnesjum sem stendur að verkefninu og hefur í samstarfi við sveitarfélögin á svæðinu, lögregluna, umferðarstofu, ökukennara, Vegagerðina og aðra þá sem áhuga hafa á umferðarmálum kynnt metnaðarfulla áætlun um baráttuna við ofbeldi í umferðinni.
Á fundinum áttu Vogar glæsilegan fulltrúa, en Tinna Guðrún Lúðvíksdóttir sagði frá reynslu sinni af notkun ökurita í bíl sínum eftir bílpróf.
19. janúar 2007