Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga

191. fundur 30. mars 2022 kl. 18:00 - 19:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Ingþór Guðmundsson forseti bæjarstjórnar
  • Inga Rut Hlöðversdóttir varamaður
  • Áshildur Linnet aðalmaður
  • Birgir Örn Ólafsson aðalmaður
  • Björn Sæbjörnsson aðalmaður
  • Andri Rúnar Sigurðsson aðalmaður
  • Jóngeir Hjörvar Hlinason aðalmaður
Starfsmenn
  • Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350

2202004F

Samþykkt
Fundargerð 350. fundar bæjarráðs er lögð fram á 191. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Forseti gefur orðið laust um fundargerðina.

Inga Rut Hlöðversdóttir óskar bókað að hún taki ekki afstöðu til máls 2 í fundargerðinni.

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs á einstökum erindum í fundargerðinni. Samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.

Til máls tóku: IG, BS, ÁE, IRH
  • Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Afgreiðsla bæjarráðs:

    Ársreikningurinn lagður fram.
  • 1.2 2202019 Hafnargata 101
    Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Afgreiðsla bæjarráðs:

    Minnisblaðið lagt fram. Bæjarráð felur bæjarstjóra áframhaldandi úrvinnslu málsins og stefnir að því að taka málið til umfjöllunar að nýju á næsta bæjarráðsfundi.
  • 1.3 2202014 Framkvæmdir 2022
    Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Afgreiðsla bæjarráðs:

    Yfirlitið lagt fram.
  • Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Afgreiðsla bæjarráðs:

    Bæjarráð felur bæjarstjóra áframhaldandi úrvinnslu málsins og leggja málið fyrir að nýju á næsta fundi bæjarráðs.
  • Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Lagt fram erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um stofnun húsnæðissamvinnufélagsins Landsbyggðar hses.

    Afgreiðsla bæjarráðs:

    Bæjarráð samþykkir að gerast aðili að Landsbyggð hses.
  • Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Afgreiðsla bæjarráðs:

    Beiðnin er samþykkt. Bæjarstjóra er falin útfærsla málsins.
  • Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Afgreiðsla bæjarráðs:

    Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins, og felur bæjarstjóra áframhaldandi úrvinnslu málsins.
  • Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Minnisblaðið lagt fram.

    Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bókun:

    Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hvetur sveitarfélög landsins og Samband íslenskra sveitarfélaga til að veita umsögn og taka afstöðu til frumvarps til laga um að veita Landsneti framkvæmdaleyfi til lagningar Suðurnesjalínu 2 í lofti í sveitarfélaginu. Með frumvarpi þessu er gengið gegn grundvallaratriði stjórnskipunar um að skipulagsvaldið sé hjá sveitarfélögunum. Verði þetta frumvarp að lögum mun það verða fordæmisgefandi og ógna sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga um ókomna tíð. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga skorar á önnur sveitarfélög og Samband íslenskra sveitarfélaga að standa vörð um lögvarið skipulagsvald sveitarfélaga.

    Það skal skýrt tekið fram að Sveitarfélagið Vogar er ekki andvígt lagningu Suðurnesjalínu 2 og telur mikilvægt að auka afhendingaröryggi raforku á svæðinu. Sveitarfélagið Vogar leggur áherslu á það sé að fara eftir þeirri umgjörð sem valkostagreiningin bauð upp á og vill að línan verði lögð í jörðu.

    Bókun bæjarráðs sveitarfélagsins Voga og umsögn um frumvarpið:

    Umsögn Sveitarfélagsins Voga um frumvarp til laga um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2:

    Frumvarp þetta var til umfjöllunar á 151. löggjafarþingi, 353. mál. Sveitarfélagið Vogar skilaði inn umsögn um frumvarpið, sem samþykkt var á 327. fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga, þ. 17.3.2021.
    Með umsögn þessari ítrekar bæjarráð Sveitarfélagsins Voga fyrri umsögn sína um málið, sem var svohljóðandi:
    „Það er mat Sveitarfélagsins Voga að með frumvarpinu vegi flutningsmenn þess að þeirri vald- og ábyrgðarskiptingu sem gildir á milli ríkis og sveitarfélaga þegar kemur að skipulagsmálum. Ekki með nokkrum rökum getur Sveitarfélagið Vogar samþykkt að víkja frá þeirri megin skiptingu á ábyrgð skipulagsmála sem fram kemur í skipulagslögum 123/2010. Í greinargerð með fumvarpi til skipulagslaga sem lagt var fram á 138. löggjafaþingi kemur skýrt fram í rökstuðningi með hvaða hætti skipting valdssviðs og ábyrgðar skuli vera og teljum við að framkomið frumvarp stríði gegn vilja löggjafans með setningu skipulagslaga 123/2010. Í frumvarpinu er lagt til að skipulagslögum sé kippt úr sambandi og að 3. gr. og 13. gr. laganna sé með öllu hunsuð. Útgáfa framkvæmdaleyfa og eftirlit með framkvæmdum líkt og kemur fram í 1. mgr. 13. gr. 123/2010 er á forræði sveitarfélaga. Sveitarfélagið Vogar telur að með tillögu sinni vegi flutningsmenn frumvarpsins að sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga í landinu. Með samþykkt frumvarpsins yrði gefið fordæmi um að hvenær sem er geti löggjafinn svipt sveitarfélög í landinu sjálfsákvörðunarrétti sínum í einstaka málum. Það er að okkar mati áhyggjuefni m.a. í ljósi eignarhalds ríkisins á stóru landsvæði í Sveitarfélaginu Vogum. Það veldur okkur hjá Sveitarfélaginu Vogum að auki áhyggjum að slík hugmynd komi fram, jafnvel áður en sveitarstjórnin hefur fengið ráðrúm til að afgreiða erindi Landsnets á formlegan hátt. Það er mat okkar að hagsmunir sveitarfélaga í landinu til sjálfsákvörðunar í sínum innri málum sé með frumvarpi þessu fórnað. Ekki verður hér fjallað sérstaklega um rökstuðning flutningsmanna sem fram kemur í greinargerð hvort sem litið er til mikilvægis raforkuflutninga eða með hvaða hætti raforkuflutningum er háttað. Grundavallar hugsun frumvarpsins snýr að fyrrnefndri verkaskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga í landinu og sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga. Við leggjumst því alfarið gegn því að frumvarp þetta verði samþykkt.“
    Þessu til viðbótar skal upplýst að umsókn Landsnets hf. um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2 er nú til umfjöllunar að nýju hjá sveitarstjórn. Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að það fái ráðrúm til að fjalla efnislega um málið og komast að niðurstöðu.

  • Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Afgreiðsla bæjarráðs:

    Erindið lagt fram.
  • Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Afgreiðsla bæjarráðs:

    Fundargerðin lögð fram.
  • Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Afgreiðsla bæjarráðs:

    Fundargerðin lögð fram.
  • Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Afgreiðsla bæjarráðs:

    Fundargerðin lögð fram.
  • Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Afgreiðsla bæjarráðs:

    Fundargerðirnar lagðar fram.
  • Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Afgreiðsla bæjarráðs:

    Fundargerðin lögð fram.
  • Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 350 Afgreiðsla bæjarráðs:

    Fundargerðin lögð fram.

2.Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga - 351

2203003F

Samþykkt
Fundargerð 351. fundar bæjarráðs er lögð fram á 191. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Forseti gefur orðið laust um fundargerðina.

Inga Rut Hlöðversdóttir óskar bókað að hún taki ekki afstöðu til máls 6 í fundargerðinni.

Mál 2.4: Bæjarstjórn væntir góðs samstarfs við UMFÞ um rekstur íþróttamannvirkja, og lýsir jafnframt yfir ánægju sinni með samninginn.

Mál 2.6: Bæjarfulltrúi L-listans óskaði eftir að eftirfarandi væri bókað við þennan lið:
Ég ítreka bókanir mínar frá fyrrum bæjarstjórnarfundum varðandi mál Hafnargötu 101 og tel rétt að taka skuli tillit til þeirra sjónarmiða sem fram koma í þeim bréfum sem Særún Jónsdóttir hefur sent til bæjarstjórnar varðaði framtíðarskipulag á þessum byggingarreit.

Afgreiðsla bæjarstjórnar:

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs á einstökum erindum í fundargerðinni. Samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.

Til máls tóku: IG, JHH, BS, IRH, ÁL.

3.Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 35

2202003F

Samþykkt
Fundargerð 35. fundar Skipulagsnefndar er lögð fram á 191. fundi bæjarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér.

Forseti gefur orðið laust um fundargerðina.

3.2.: Frístundasvæði við Breiðagerðisvík, deiliskipulagmál: Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu tillögu Skipulagsnefndar með áorðnum breytingum, og að tillagan verði verði kynnt samkvæmt 4.mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með 5 atkvæðum, einn er á móti og einn situr hjá.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu Skipulagsnefndar á einstökum erindum fundargerðarinnar. Samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum.

Til máls tóku: IG.
  • Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 35 Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin tekur vel í erindið og þakkar aðilum Geo Salmo ehf. fyrir góða og áhugaverða kynningu.
  • Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 35 Afgreiðsla skipulagsnefndar: Tillaga að deiliskipulagi fyrir Breiðagerði lögð fram til umfjöllunar og meðferðar hjá Skipulagsnefnd. Lagt er til að hámarks nýtingarhlutfall verði 0,15 og hámarks byggingarmagn 220 fermetra á lóð. Nefndin samþykkir að tillagan verði kynnt samkvæmt 4. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja slíkt hið sama.
  • Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 35 Afgreiðsla skipulagsnefndar: Nefndin tekur vel í erindið og þakkar aðilum Iðndals 7-11 fyrir komuna.
  • Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 35 Afgreiðsla skipulagsnefndar: Það er mat skipulagsnefndar að um óverulega breytingu sé að ræða skv. 2. mgr. 43. gr. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að heimila breytinguna og að fyrirliggjandi tillaga verði samþykkt og málsmeðferð verði í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 35 Afgreiðsla skipulagsnefndar: Tekið er vel í erindið og óskað eftir að skipulagsbreyting verði gerð í samræmi við fyrirhugaða breytingu og lögð inn til samþykktar.
  • Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Voga - 35 Afgreiðsla skipulagsnefndar: Eigandi hefur brugðist við ábendingum byggingarfulltrúa. Nefndin bendir eiganda á að hafa samband við byggingarfulltrúa áður en farið er í framkvæmdir. Framkvæmdir á lóðum geta verið leyfis- eða tilkynningaskyldar. Nefndin samþykkir erindið og felur byggingarfulltrúa að ganga frá málinu.

Fundi slitið - kl. 19:30.

Getum við bætt efni síðunnar?