Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga

350. fundur 02. mars 2022 kl. 06:30 - 07:40 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Bergur Álfþórsson formaður
  • Áshildur Linnet 1. varamaður
  • Björn Sæbjörnsson aðalmaður
  • Jóngeir Hjörvar Hlinason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri
Dagskrá

1.Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2021

2202025

Hafnasambandið sendir aðildarfélögum sínum ársreikning sambandsins fyrir árið 2021
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Ársreikningurinn lagður fram.

2.Hafnargata 101

2202019

Minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um málefni Hafnargötu 101
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Minnisblaðið lagt fram. Bæjarráð felur bæjarstjóra áframhaldandi úrvinnslu málsins og stefnir að því að taka málið til umfjöllunar að nýju á næsta bæjarráðsfundi.

3.Framkvæmdir 2022

2202014

Yfirlit framkvæmda dags. 28.2.2022
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Yfirlitið lagt fram.

4.Fyrispurn varðandi kaup á húsnæði

2112004

Tillaga um kaupverð fyrir húsnæðið Hafnargötu 2
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð felur bæjarstjóra áframhaldandi úrvinnslu málsins og leggja málið fyrir að nýju á næsta fundi bæjarráðs.

5.Stofnun Húsnæðissjálfseignarstofnunar á landsbyggðinni

2202030

Erindi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um stofnun Landsbyggðar hses.
Samþykkt
Lagt fram erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga um stofnun húsnæðissamvinnufélagsins Landsbyggðar hses.

Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð samþykkir að gerast aðili að Landsbyggð hses.

6.Skólaheimsókn til Danmerkur

2202018

Stuðningur til starfsmanna Stóru-Vogaskóla v. heimsóknar til Danmerkur, lán þar til styrkveiting stéttarfélags er samþykkt.
Samþykkt
Afgreiðsla bæjarráðs:

Beiðnin er samþykkt. Bæjarstjóra er falin útfærsla málsins.

7.Samstarf um rekstur íþróttamiðstöðvar

2201002

Drög að samningi við UMFÞ um rekstur íþróttamiðstöðvar ásamt fylgiskjölum, með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins, og felur bæjarstjóra áframhaldandi úrvinnslu málsins.

8.Frumvarp til laga um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2

2202031

Minnisblað bæjarstjóra um umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um frumvarp til laga um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2.
Samþykkt
Minnisblaðið lagt fram.

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi bókun:

Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hvetur sveitarfélög landsins og Samband íslenskra sveitarfélaga til að veita umsögn og taka afstöðu til frumvarps til laga um að veita Landsneti framkvæmdaleyfi til lagningar Suðurnesjalínu 2 í lofti í sveitarfélaginu. Með frumvarpi þessu er gengið gegn grundvallaratriði stjórnskipunar um að skipulagsvaldið sé hjá sveitarfélögunum. Verði þetta frumvarp að lögum mun það verða fordæmisgefandi og ógna sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga um ókomna tíð. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga skorar á önnur sveitarfélög og Samband íslenskra sveitarfélaga að standa vörð um lögvarið skipulagsvald sveitarfélaga.

Það skal skýrt tekið fram að Sveitarfélagið Vogar er ekki andvígt lagningu Suðurnesjalínu 2 og telur mikilvægt að auka afhendingaröryggi raforku á svæðinu. Sveitarfélagið Vogar leggur áherslu á það sé að fara eftir þeirri umgjörð sem valkostagreiningin bauð upp á og vill að línan verði lögð í jörðu.

Bókun bæjarráðs sveitarfélagsins Voga og umsögn um frumvarpið:

Umsögn Sveitarfélagsins Voga um frumvarp til laga um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2:

Frumvarp þetta var til umfjöllunar á 151. löggjafarþingi, 353. mál. Sveitarfélagið Vogar skilaði inn umsögn um frumvarpið, sem samþykkt var á 327. fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga, þ. 17.3.2021.
Með umsögn þessari ítrekar bæjarráð Sveitarfélagsins Voga fyrri umsögn sína um málið, sem var svohljóðandi:
„Það er mat Sveitarfélagsins Voga að með frumvarpinu vegi flutningsmenn þess að þeirri vald- og ábyrgðarskiptingu sem gildir á milli ríkis og sveitarfélaga þegar kemur að skipulagsmálum. Ekki með nokkrum rökum getur Sveitarfélagið Vogar samþykkt að víkja frá þeirri megin skiptingu á ábyrgð skipulagsmála sem fram kemur í skipulagslögum 123/2010. Í greinargerð með fumvarpi til skipulagslaga sem lagt var fram á 138. löggjafaþingi kemur skýrt fram í rökstuðningi með hvaða hætti skipting valdssviðs og ábyrgðar skuli vera og teljum við að framkomið frumvarp stríði gegn vilja löggjafans með setningu skipulagslaga 123/2010. Í frumvarpinu er lagt til að skipulagslögum sé kippt úr sambandi og að 3. gr. og 13. gr. laganna sé með öllu hunsuð. Útgáfa framkvæmdaleyfa og eftirlit með framkvæmdum líkt og kemur fram í 1. mgr. 13. gr. 123/2010 er á forræði sveitarfélaga. Sveitarfélagið Vogar telur að með tillögu sinni vegi flutningsmenn frumvarpsins að sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga í landinu. Með samþykkt frumvarpsins yrði gefið fordæmi um að hvenær sem er geti löggjafinn svipt sveitarfélög í landinu sjálfsákvörðunarrétti sínum í einstaka málum. Það er að okkar mati áhyggjuefni m.a. í ljósi eignarhalds ríkisins á stóru landsvæði í Sveitarfélaginu Vogum. Það veldur okkur hjá Sveitarfélaginu Vogum að auki áhyggjum að slík hugmynd komi fram, jafnvel áður en sveitarstjórnin hefur fengið ráðrúm til að afgreiða erindi Landsnets á formlegan hátt. Það er mat okkar að hagsmunir sveitarfélaga í landinu til sjálfsákvörðunar í sínum innri málum sé með frumvarpi þessu fórnað. Ekki verður hér fjallað sérstaklega um rökstuðning flutningsmanna sem fram kemur í greinargerð hvort sem litið er til mikilvægis raforkuflutninga eða með hvaða hætti raforkuflutningum er háttað. Grundavallar hugsun frumvarpsins snýr að fyrrnefndri verkaskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga í landinu og sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaga. Við leggjumst því alfarið gegn því að frumvarp þetta verði samþykkt.“
Þessu til viðbótar skal upplýst að umsókn Landsnets hf. um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2 er nú til umfjöllunar að nýju hjá sveitarstjórn. Bæjarráð ítrekar mikilvægi þess að það fái ráðrúm til að fjalla efnislega um málið og komast að niðurstöðu.

9.Mál til umsagnar frá nefndasviði Alþingis 2022

2201029

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Erindið lagt fram.

10.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 70

2201002F

Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Fundargerðin lögð fram.
  • 10.1 2112006 Hrafnaborg 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 70 Afgreiðsla: Byggingaráformin eru samþykkt. Umsóknin samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar.
  • 10.2 2112005 Hrafnaborg 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 70 Afgreiðsla: Byggingaráformin eru samþykkt. Umsóknin samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar.
  • 10.3 2104170 Vogagerði 24 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
    Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 70 Afgreiðsla: Byggingaráformin eru samþykkt. Umsóknin samræmist aðal- og deiliskipulagi, mannvirkjalögum nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Útgáfa byggingarleyfis er háð skilyrðum 2.4.4. gr. byggingarreglugerðar. Áskilin er öryggis- og lokaúttekt byggingarfulltrúa, skv. ákvæðum 3.8. og 3.9. kafla byggingarreglugerðar.

11.Fundargerðir Brunavarna Suðurnesja 2022

2202016

62. stjórnarfundur Brunavarna Suðurnesja
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Fundargerðin lögð fram.

12.Fundargerðir stjórnar Kölku-2022

2201031

533. stjórnarfundur Kölku
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Fundargerðin lögð fram.

13.Fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2022

2202024

fundargerð 775. fundar SSS 19012022
fundargerð 776. fundar SSS 16022022
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Fundargerðirnar lagðar fram.

14.Fundargerðir Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum 2021

2104130

Fundargerð 774. fundar SSS 15122021
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Fundargerðin lögð fram.

15.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2022

2202004

Fundargerð 442. fundar Hafnasambands Íslands
Lagt fram
Afgreiðsla bæjarráðs:

Fundargerðin lögð fram.

Fundi slitið - kl. 07:40.

Getum við bætt efni síðunnar?