Sveitarfélagið Vogar auglýsir eftir umsjónarmanni Tjarnarsals
Markmið starfsins er að veita leigjendum salarins góða þjónustu við útleigu.
Í starfinu felst umsjón með Tjarnarsal og eldhúsi meðan hann er í útleigu.
HæfniskröfurLeitað er að sjálfstæðum og ábyrgum einstakling með ríka þjónustulund.
Vinnutími er aðallega um kvöld og helgar.
Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 424-6660, eða robert@vogar.is
Nú er tækifærið þitt e.t.v.komið til að fá að upplifa það
Okkur vantar nefnilega góða kennara og samstarfsfólk.Nú er laus deildarstjórastaða á eldri barna deild og einnig almennar kennarastöður.Hér er einstakt starfslið sem vinnur vel saman frábært starf. Við erum öll sammála um að það er mjög gaman að vinna hér, og það verður enn skemmtilegra þegar við fáum fleiri jákvæða og hressa aðila í hópinn.
Ef ekki fæst uppeldismenntað starfsfólk verða aðrar umsóknir teknar til umfjöllunar.
Umsóknareyðublöð má nálgast í leikskólanum Suðurgötu 1-5, eða á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga Iðndal 2.
Nánari upplýsingar veita Salvör Jóhannesdóttir skólastjóri og María Hermannsdóttir aðstoðarskólastjóri í símum 424-6817 og 893-4079.
Menningar- og sögutengd gönguferð sunnudaginn 2.september kl.11 í boði Reykjanesbæjar og Ferðamálasamtaka Suðurnesja í samvinnu við sjf menningarmiðlun og FERLIR. Gengið frá Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ, Menntavegi 1 að Melabergi, Hvalsnesi.
Eins áður hefur komið fram hér á vefnum tóku nemendur í Vinnuskóla Voga þátt í ljósmyndasamkeppni í tilefni Evrópuársins 2007 – Árs jafnra tækifæra. Mynd þeirra Dagbjartar, Katrínar, Heiðu, Petru & Thelmu sem tóku þátt í hópakeppni, hlaut þriðju verðlaun.
Þær stöllur tóku þessa skemmtilegu mynd sem fylgir hér með og óskum við þeim til hamingju með glæsilegan árangur.
Menningar- og sögutengd gönguferð sunnudaginn 26.ágúst kl.11 í boði Ferðamálasamtaka Suðurnesja í samvinnu við sjf menningarmiðlun og FERLIR Lagt af stað frá Sundlauginni í Sandgerði kl.
Á föstudag var nýja viðbyggingin við Íþróttamiðstöðina í Vogum afhent og formlega tekin í notkun.Mannvirkið er í eigu Eignarhaldsfélagsins Fasteignar, en sveitarfélagið leigir eignina af Fasteign rétt eins og húsnæði Stóru- Vogaskóla og eldri hluta Íþróttamiðstöðvarinnar.
Kæru foreldrar/forráðamenn.Frá og með miðvikudeginum 15.ágúst er tekið við umsóknum um pláss í Frístund ( heilsdagsskóli). Vinsamlegast athugið að Frístund getur bara tekið við ákveðnum fjölda barna á hverjum vetri og því er mikilvægt að sækja um sem allra fyrst.
Frístundaskólinn er ætlaður börnum í 1-3.