Fréttir

Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
Nýr formaður kosinn á aðalfundi Umf. Þróttar

Nýr formaður kosinn á aðalfundi Umf. Þróttar

 Auka aðalfundur Ungmennafélagsins Þróttar í  Vogum var haldinn í félagsmiðstöðinni í Vogunum síðast liðið miðvikudagskvöld.
Bílaþvottur og bón....Allir á hreinan bíl ....og styrkja meistaraflokk Þróttar í leiðinni !

Bílaþvottur og bón....Allir á hreinan bíl ....og styrkja meistaraflokk Þróttar í leiðinni !

Meistaraflokkur Þróttar í knattspyrnu verður með fjáröflun fimmtudagskvöldið 16.maí og laugardaginn 18.maí, og ætla strákarnir að taka að sér að þrífa bíla Vogabúa innan sem utan, og að sjálfsögðu að bóna líka. Sækjum bílana og skutlum þeim heim aftur fyrir þá sem vilja. Verðskrá: Mjög hagstætt og ódýrt! • Fólksbílar: Alþrif að innan og utan, það er þvottur, tjöruhreinsun, bón, rúður pússaðar og þrif að innan.
Jarðvangsvika á Reykjanesi 10-20 Maí

Jarðvangsvika á Reykjanesi 10-20 Maí

Reykjanes jarðvangur stendur fyrir sinni fyrstu jarðvangsviku 10.-20.maí.  Í vikunni er boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir íbúa á Reykjanesi og gesti þeirra. Sjá dagskrá nánar: http://reykjanesgeopark.tumblr.com/post/49922225621/reykjanes-jar-vangur-stendur-fyrir-sinni-fyrstu.
Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga 2013

Umhverfisvika Sveitarfélagsins Voga 2013

Vertu til er vorið kallar á þig !Vorið er komið og grundirnar gróa.Þá er ráð að taka til við vorverkin í garðinum og nánasta umhverfi.

Tilkynning frá N1 Vogum

Nú er hægt að ná sér í eintak af Símaskrá 2013 í N1 versluninni Iðndal 2.
Ath. lokað fyrir kalda vatnið í dag 6. maí

Ath. lokað fyrir kalda vatnið í dag 6. maí

Tilkynning Lokað verður fyrir kalda vatnið mánudaginn 6.maí nk.milli kl.14:30-20:00, vegna tenginga og breytinga á vatnslögn í Tjarnargötu. Umhverfisdeild.
Nágrannaslagur í kvöld 3. maí

Nágrannaslagur í kvöld 3. maí

Núna  föstudaginn 3.maí kl.20:30 mun fara fram fyrsta umferð í bikarkeppni KSÍ eða Borgunarbikarnum.Er þetta fyrsti alvöru leikur tímabilsins hjá Þrótti og nokkur spenna í mönnum eftir langt og strangt undirbúningstímabil. Upphaflega átti leikurinn að fara fram  í Vogum, en vegna aðstæðna getum við ekki spilað leikinn heima, og það lið er tapar, leikur ekki fleiri leiki í Borgunarbikarnum þetta árið.
Kaffihúsastemming í Álfagerði þann 1. maí. kl.: 14:00 - 16:00

Kaffihúsastemming í Álfagerði þann 1. maí. kl.: 14:00 - 16:00

Boðið verður uppá ýmsar kræsingar til styrktar lokaferðar 10.bekkjar í vor.Nú er tilvalið að taka ömmu, afa, frænda eða frænku með í kaffi og kruðerí. Verð inná hlaðborðið: 1.000 kr.
Lausar stöður við Heilsuleikskólann Suðurvelli

Lausar stöður við Heilsuleikskólann Suðurvelli

Heilsuleikskólinn Suðurvellir óskar eftir að ráða deildarstjóra og leikskólakennara til starfa næsta haust.Suðurvellir er fjögurra deilda leikskóli sem vinnur eftir Viðmiðum Heilsustefnunnar.
Sumarstörf í Vogum 2013

Sumarstörf í Vogum 2013

Eftirtalin sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Sveitarfélaginu Vogum sumarið 2013.Stöður flokkstjóra í vinnuskólaFlokkstjóri starfar undir stjórn forstöðumanns umhverfis og eigna.