Upplýsingafundur Almannavarna kl. 15:00

Klukkan 15:00 í dag, mánudaginn 6. nóvember verður haldinn upplýsingafundur Almannavarna, í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð. Fundinum stýrir Víðir Reynisson sviðsstjóri Almannavarna, hann fer yfir stöðu mála vegna jarðhræringanna á Reykjanesinu. Einnig verða á fundinum Kristín Jónsdóttir, fagstjóri náttúruvöktunar hjá Veðurstofu Íslands, Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, Kristinn Harðarson, framkvæmdarstjóri frá HS Orku og Páll Erland, forstjóri hjá HS Veitum. Gert er ráð fyrir að fjölmiðlafólk geti spurt spurninga á fundinum og tekið viðtöl eftir fund.

Fundurinn er haldinn til miðla upplýsingum og fara yfir þau verkefni sem unnið er að vegna jarðhræringanna á Reykjanesi.

Almannavarnir: Víðir Reynisson sviðsstjóri Almannavarna
Veðurstofa Íslands: Kristín Jónsdóttir, fagstjóri náttúruvöktunar hjá Veðurstofu Íslands
Grindavík: Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík
HS Orka: Kristinn Harðarson, framkvæmdarstjóri frá HS Orku
HS Veitur: Páll Erland, forstjóri frá HS Veitum

Fundurinn verður m.a. í beinu streymi frá fréttavef Vísis og RÚV

Náttúruvá - Mikilvægar upplýsingar