Tillaga að breytingum á Svæðisskipilagi Suðurnesja 2008 - 2024

Tillaga að breytingum á Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024

Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja auglýsir tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi Suðurnesja 2008-2024 ásamt umhverfisskýrslu sbr. 27. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Breytingartillagan felur í sér breytta afmörkun á vatnsverndarsvæðis í Reykjanesbæ, uppfærð flugbrautarkerfi Keflavíkurflugvallar og uppfært vatnsverndarkort fyrir Suðurnesin

Breytingartillagan ásamt umhverfisskýrslu og vatnsverndarkorti fyrir Suðurnesin verður aðgengileg á heimasíðu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (https://sss.is/blog/svaedisskipulag/) frá 29. júlí til 16. september 2019.

Breytingartillagan verður til sýnis frá 29. júlí nk. til 16. september 2019 á skrifstofu sambandsins, Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbæ og á skrifstofum Reykjanesbæjar, Grindavíkurbæjar, Sveitarfélagsins Voga og Suðurnesjabæjar. Jafnframt verður breytingartillagan til sýnis hjá Skipulagsstofnun Borgartúni 7b í Reykjavík, á kynningartímanum.

Skriflegar ábendingar og athugasemdir við tillöguna skal senda til skrifstofu SSS, eða á netfangið sss@sss.is. Þær þurfa að berast fyrir 16. september 2019.

Svæðisskipulagsnefnd Suðurnesja

Ólafur Þór Ólafsson, formaður

17381_vatnsverndarkort_a2.pdf

Skipulagsreglur 2019 02 21_drög

Svæðisskipulag-breyting

Uppdráttur I-IV 2018_10_08