Stóri plokkdagurinn, 24. apríl 2022

Stóri plokkdagurinn er 24. apríl í ár. Undanfarin ár hefur Sveitarfélagið Vogar verið í hópi þeirra fjölmörgu sem taka virkan þátt í deginum og í ár verður engin undantekning þar á. 

Við hvetjum alla til að fylgjast með viðburðinum á viðburðadagatalinu okkar en dagskráin þar verður uppfærð efir því sem hún skýrist. 

Ef íbúar hafa ábendingar um hvað hægt er að gera, t.d. hvaða svæði væri hægt að taka fyrir eða annað slíkt, þá tökum við á móti slíkum ábendingum með þökkum. 

Ábendingar má senda á gudmundurs@vogar.is 

Hér má skoða dagskrá Plokkdagsins í Vogum.