Stóri plokkdagurinn 2022

Stóri plokkdagurinn er laugardaginn 24. apríl.

 

Sveitarfélagið Vogar tekur þátt í honum eins og venjulega.

Við munum mæta við þjónustumiðstöð kl. 10 og verðum til um kl. 13.

Hægt verður að nálgast margnota strigapoka og aðra poka í þjónustumiðstöðinni, einnig verða þar plokktangir til láns (muna að skila þeim á sama stað).

Lionsfélagið verður með glóðvolgar, nýbakaðar kleinur og kaffi í Lionshúsinu frá 11-13

 

Nánar á Vogar.is