Ný bæjarstjórn tók til starfa í Vogum

Nýkjörin bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga kom saman til síns fyrsta fundar fimmtudaginn 11. júní 2026.

Á fundinum tóku nýir bæjarfulltrúar formlega til starfa í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna sem fram fóru 16. maí. D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra hlaut þrjá bæjarfulltrúa, A-listi Fyrir samfélagið tvo, E-listi Strandar og Voga einn og L-listi Lista fólksins einn.

Kristinn Björgvinsson var kjörinn forseti bæjarstjórnar og Birgir Örn Ólafsson formaður bæjarráðs.

Bæjarstjórn gekk jafnframt frá skipan í fastanefndir sveitarfélagsins, ráð og stjórnir og samþykkti ráðningarsamning við Björgu Ástu Þórðardóttur sem bæjarstjóra Sveitarfélagsins Voga fyrir kjörtímabilið 2026–2030.

Á fundinum var lögð fram yfirlýsing um málefnasamning D-lista, E-lista og L-lista um samstarf á kjörtímabilinu 2026–2030. Þar kemur fram að samstarfið byggi á breiðum grunni og að lögð verði áhersla á traustan rekstur, öfluga þjónustu, skýra forgangsröðun, aukið gagnsæi og gott samtal við íbúa.

Eitt af fyrstu verkefnum nýrrar bæjarstjórnar verður áframhaldandi vinna við að fjölga leikskólaplássum. Á fundinum var fjallað um viðauka við fjárhagsáætlun vegna kaupa og uppsetningar á færanlegum kennslustofum fyrir Heilsuleikskólann Suðurvelli. Málinu var vísað til frekari vinnslu í bæjarráði.

Fundargerð bæjarstjórnar verður aðgengileg á vef sveitarfélagsins ásamt fundargögnum.


Nýkjörin bæjarstjórn; f.v. Kristinn Björgvinsson, Birgir Örn Ólafssonar, Áslaug Fjóla Magnúsdóttir, Gunnar J. Helgason, Björg Ásta Þórðardóttir, Hulda Birna Helgadóttir Blöndal og Guðmann Rúnar Lúðvíksson.