Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga

247. fundur 11. júní 2026 kl. 17:30 - 18:30 á bæjarskrifstofu
Nefndarmenn
  • Birgir Örn Ólafsson aðalmaður
  • Kristinn Björgvinsson aðalmaður
  • Björg Ásta Þórðardóttir aðalmaður
  • Guðmann Rúnar Lúðvíksson aðalmaður
  • Gunnar Júlíus Helgason aðalmaður
  • Hulda Blöndal aðalmaður
  • Áslaug Fjóla Magnúsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Ásta Friðriksdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði: Ásta Friðriksdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
Kristín Arna Hjaltadóttir sat fundinn undir dagskrárlið nr. 8. Björg Ásta Þórðardóttir víkur af fundi undir dagskrárlið nr. 8.

Birgir Örn Ólafsson starfsaldursforseti bæjarstjórnar setur fund og stýrir fundi þar til forseti bæjarstjórnar hefur verið kjörinn. Forseti óskar öllum bæjarfulltrúum til hamingju með kjörið og þá sérstaklega nýjum bæjarfulltrúum á þessum vettvangi.
Áður en gengið var til dagskrár þá kannaði aldursforseti lögmæti fundarins.

Til máls tók: GJH

Bókun A-lista:
Fulltrúar A-listans krefjast þess að mál nr. 8 og 9 á dagskrá fundarins verði frestað vegna verulegs galla í fundarboði. Þar sem fylgigögn í þessum málum bárust ekki fyrr en rúmlega sólarhring fyrir fund.
Í 12 gr. sveitarstjórnarlaga segir: "Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara" og í 15. gr. segir "Fundarboði skal fylgja dagskrá fundarins og þau gögn sem eru nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind".
Í ljósi þess að fylgigögn í máli nr. 8 og 9 bárust tæpum þremur sólarhringum seinna en lög gera ráð fyrir fara fulltrúar A-listans fram a´að þeim verði frestað svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun í málunum.

1.Sveitarstjórnarkosningar 2026

2606014

Lögð fram kosningarskýrsla yfirkjörstjórnar Sveitarfélagsins Voga um niðurstöður sveitarstjórnarkosninga sem fram fóru 16. maí 2026.

Á kjörskrá voru 1475. Greidd atkvæði alls voru 875 eða 59,3%. Auðir seðlar voru 18 og ógildir seðlar 4.



Atkvæðin féllu þannig:

A-listi Fyrir samfélagið

223 atkvæði og 2 bæjarfulltrúa

D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra 333 atkvæði og 3 bæjarfulltrúa

E-listi Framboðsfélag E-listans

172 atkvæði og 1 bæjarfulltrúa

L-listi Framfarafélag L-listans

125 atkvæði og 1 bæjarfulltrúa



Réttkjörnir bæjarfulltrúar Sveitarfélagsins Voga eru:

Björg Ásta Þórðardóttir D-lista

Gunnar Júlíus Helgason A-lista

Birgir Örn Ólafsson E-lista

Guðmann Rúnar Lúðvíksson D-lista

Kristinn Björgvinsson L-lista

Áslaug Fjóla Magnúsdóttir A-lista

Hulda Blöndal D-lista



Réttkjörnir varabæjarfulltrúar Sveitarfélagsins Voga eru:

Kristín Arna Hjaltadóttir D-lista

Hilmar Ólafsson A-lista

Eva Björk Jónsdóttir E-lista

Andri Rúnar Sigurðsson D-lista

Eðvarð Atli Bjarnason L-lista

Guðrún Ósk Barðadóttir A-lista

Magnús G. Jónsson Núpan D-lista
Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Lagt fram

2.Kosning forseta sbr. 7. gr. samþykkta um stjórn Sveitarfélagsins Voga

2606009

Í samræmi við ákvæði 7. gr. samþykktar um stjórn Sveitarfélagsins Voga skal kjósa forseta til eins árs á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar. Tilnefning til embættis forseta er eftirfarandi:



Tillaga D, E og L lista er að Kristinn Björgvinsson verði forseti bæjarstjórnar til eins árs.
Forseti gaf orðið laust um tillöguna.

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Tilnefning er samþykkt með 5 atkvæðum meirihluta. Fulltrúar minnihlutans sátu hjá.

Nýkjörinn forseti bæjarstjórnar, Kristinn Björgvinsson, tók í kjölfarið við stjórn fundarins.

3.Kosning fyrsta og annars varaforseta sbr. 7. gr. samþykkta um stjórn Sveitarfélagsins Voga

2606015

Í samræmi við ákvæði 7.gr. samþykktar um stjórn Sveitarfélagsins Voga skal kjósa tvo varaforseta til eins árs á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar. Tilnefning til embættis 1. varaforseta og 2. varaforseta eru eftirfarandi:



Tillaga D, E og L lista að Guðmann Rúnar Lúðvíksson verði 1. varaforseti bæjarstjórnar til eins árs.

Forseti gefur orðið laust um tillöguna.

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Tillagan er samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Tillaga D, E og L lista að Birgir Örn Ólafsson verði tilnefndur sem 2. varaforseti bæjarstjórnar.

Forseti gefur orðið laust um tillöguna.

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Tillagan er samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

4.Málefnasamningur D, E og L um samstarf kjörtímabilið 2026-2030

2606011

Bæjarfulltrúar D lista, Sjálfstæðisflokks og óháðra, E-lista Strandar og Voga og L lista Lista fólksins hafa komist að samkomulagi um samstarf kjörtímabilið 2026-2030. Samstarfið byggir á breiðum og sterkum grunni sem lagður var á liðnu kjörtímabili. Meirihlutinn mun horfa fram á veginn með áherslu á traustan rekstur, öfluga þjónustu, skýra forgangsröðun og áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins í góðu samtali við íbúa.



Lögð verður áhersla á gott samstarf allra kjörinna fulltrúa, nefndarmanna, starfsfólks sveitarfélagsins, íbúa, félagasamtaka og atvinnulífs. Jafnframt verður lögð áhersla á aukið gagnsæi, betri upplýsingagjöf og vandað vinnulag í stórum málum sem varða framtíð sveitarfélagsins.



Í fjármálum og stjórnsýslu verður lögð áhersla á traustan og hallalausan rekstur, ábyrga fjármálastjórn, hóflegar álögur og skýra forgangsröðun verkefna. Unnið verður að bættri þjónustu við íbúa og fyrirtæki, meðal annars með þjónustuviðmiðum, aukinni rafrænni þjónustu, innleiðingu Vogaappsins og nýrri heimasíðu og skýrari upplýsingagjöf. Jafnframt verður unnið að hagkvæmni í rekstri, faglegri uppbyggingu stjórnsýslu og skýrri viðhaldsáætlun fyrir mannvirki og innviði sveitarfélagsins.



Í skipulags- og innviðamálum verður lögð áhersla á sjálfbæra íbúðauppbyggingu í takt við innviði og þjónustu. Unnið verður að úthlutun sérbýlislóða, fjölbreyttari húsnæðiskostum fyrir eldri borgara og fatlað fólk, vönduðum skipulagsskilmálum og opnu samtali um framtíðarskipulag Breiðagerðis. Þá verður áfram unnið að því að styrkja áfallaþol sveitarfélagsins, meðal annars með áherslu á varaleiðir, vatnsöryggi, varavatnsból og mikilvæga grunninnviði.



Í atvinnumálum og þjónustu í heimabyggð verður lögð áhersla á að fjölga tækifærum fyrir íbúa og fyrirtæki, efla þjónustu og skapa betri skilyrði fyrir atvinnuuppbyggingu og fjölbreyttari störf. Unnið verður að heildarskipulagi hafnarsvæðisins með hliðsjón af strandlengju, aðgengi að fjöru, útivist, þjónustu, mögulegri atvinnuuppbyggingu, framtíðarnýtingu hafnarinnar og viðhaldi hafnarmannvirkja. Þá verður áfram unnið að undirbúningi uppbyggingar á Keilisnesi, atvinnulóðum, fjarvinnusetri og stofnun atvinnu- og nýsköpunarnefndar.



Í skóla-, leikskóla- og fjölskyldumálum verður lögð áhersla á að útfæra nánar og innleiða Vogamódelið sem heildstæða nálgun í leikskólamálum. Markmiðið er að bæta þjónustu við barnafjölskyldur, efla gæði leikskólastarfs, auka sveigjanleika foreldra og vinna að sjálfbærri uppbyggingu leikskólaþjónustu. Í útfærslunni verði meðal annars stefnt að gjaldfrjálsum 30 klst. í leikskóla, með hliðsjón af mönnun, húsnæði, fjárhagslegu svigrúmi og gæðum þjónustunnar. Þá verður unnið að fjölgun leikskólaplássa, bættri aðstöðu barna og starfsfólks og undirbúningi nýs leikskóla með ungbarnadeild. Áfram verður unnið að uppbyggingu Stóru-Vogaskóla, eflingu faglegs skólastarfs, ÍSAT-kennslu, skólaþjónustu, samfellu milli skólastiga og stuðningi við líðan, félagslíf og virkni barna og ungmenna.



Í íþrótta-, tómstunda-, menningar- og lýðheilsumálum verður lögð áhersla á öflugt samstarf við félagasamtök og skýrari ramma um samstarfssamninga, styrki og stuðning. Lokið verður við gerð íþrótta- og tómstundastefnu, samstarf skóla, frístundastarfs og íþróttafélaga verður eflt og unnið verður að bættu aðgengi barna og ungmenna að íþróttum og tómstundum, meðal annars með frístundarútu og samgöngustyrk. Þá verður lögð áhersla á félags- og viðburðastarf ungmenna, aukna virkni eldri borgara, betri aðstöðu fyrir líkamsrækt og heilsueflingu, eflt menningar- og viðburðalíf og stofnun Voganeistans til að styðja við frumkvæði íbúa.



Í velferðarmálum verður lögð áhersla á þjónustu, félagsstarf og upplýsingagjöf til eldri borgara, bætt aðgengi eldri borgara og fatlaðs fólks að þjónustu og eftirfylgni með samstarfssamningi við Suðurnesjabæ um velferðarþjónustu. Setja skal á fót notendaráð um málefni fatlaðs fólks, efla farsæld barna og leita leiða til að styðja við aukna atvinnuþátttöku fólks með skerta starfsgetu.



Í umhverfis-, ásýndar- og útivistarmálum verður lögð áhersla á fallegt, snyrtilegt og aðgengilegt nærumhverfi sem styður við útiveru, lýðheilsu og lífsgæði íbúa. Unnið verður að aðgerðaráætlun um fegrun bæjarins með aðkomu íbúa, bættri umhirðu, fleiri grænum svæðum, betri leiksvæðum, fjölgun áningarstaða, betra aðgengi að útivistarsvæðum og sýnilegri sögu sveitarfélagsins í nærumhverfi og á vef sveitarfélagsins.



D-, E- og L-listi ganga til samstarfsins með það að leiðarljósi að vinna saman af ábyrgð, krafti og góðu samtali fyrir íbúa Sveitarfélagsins Voga.



Til máls tóku: BÁÞ, GJH, GRL,

Bókun A-lista:
Í ljósi þess að fráfarandi meirihluti hefur náð saman um að endurnýja samstarfið er ekki úr vegi að vísa íbúm sveitarfélagsins á fundargerð bæjarstjórnarfundar nr. 194 þann 8. júní 2022. Þannig geta íbúar áttað sig á hvers er að vænta af þessum málefnasamningi.

Afgreisla bæjarstjórnar:
Lagt fram

5.Endurskoðun samþykkta um stjórn Sveitarfélagsins Voga

2312018

Bæjarstjórn tekur til þriðju umræðu og afgreiðslu tillögu að breytingu á samþykktum Sveitarfélagsins Voga.

Helstu breytingar frá annarri umræðu lúta að því að kjörgengi varaáheyrnarfulltrúa samræmist betur ákvæðum sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tilekið 1. mgr. 27. gr., lagfæring á heiti fastanefndar og lagt til að skipulags- og umhverfisnefnd heiti umhverfis- og skipulagsnefnd, að fjöldi aðalmanna í umhverfis- og skipulagsnefnd verði fimm manns í stað sjö og um skipun í öldungaráð Suðurnesjabæjar og Voga.

Lögð var fram tillaga á fundinum um breytingu á c-lið 9. tölul 47 .gr. á heiti öldungaráðs í öldungaráð Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga. Að öðru leyti yrði greinin óbreytt.

Lagt til að skjalið verði samþykkt, með áorðnum breytingum.

Til máls tóku: BÖÓ, BÁÞ

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framlagðar tillögur að breytingum á samþykktum sveitarfélagsins.


6.Kosning í bæjarráð 2026

2606010

Í samræmi við ákvæði 27. gr. samþykktar um stjórn Sveitarfélagsins Voga skal á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar kjósa 3 aðalmenn og jafnmarga varamenn í bæjarráð til eins árs.

D-listi og E-listi leggja fram sameiginlegan lista við kosningu í bæjarráð Sveitarfélagsins Voga á kjörtímabilinu 2026-2030.

Aðalmenn:
Guðmann Rúnar Lúðvíksson, D-lista varaformaður
Birgir Örn Ólafsson, E-lista - formaður

Varamenn:
Hulda Blöndal, D-lista
Eva Björk Jónsdóttir, E-lista

A-listi leggur fram lista við kosningu í bæjarráð Sveitarfélagsins Voga á kjörtímabilinu 2026-2030.

Aðalmaður: Gunnar J. Helgason
Varamaður: Áslaug Fjóla Magnúsdóttir

L-listi leggur fram lista við kosningu í bæjarráð Sveitarfélagsins Voga á kjörtímabilinu 2026-2030.

Áheyrnarfulltrúi:
Kristinn Björgvinsson, L-listi

Varaáheyrnarfulltrúi
Eðvarð Atli Bjarnason, L-listi

Afgreiðsla bæjarstjórnar:
Tilnefningarnar eru samþykktar samhljóða með 7 atkvæðum.

Bókun: Kjör vararáheyrnarfulltrúa tekur ekki gildi fyrr en við birtingu samþykktar um stjórn um Sveitarfélagsins Voga, með áorðnum breytingum, í Stjórnartíðindum.


7.Kosning í nefndir, ráð og stjórnir 2026

2606012

Kosningar í nefndir og ráð samkvæmt ákvæðum 34., 35., 43., 46. og 47.gr. samþykktar um stjórn Sveitarfélagsins Voga.
Fram komu sameiginlegar listar yfir tilnefningar frá listum D, E og L og listi frá A-lista í aðalmenn og varamenn í fastanefndir sveitarfélagsins kosnar til fjögurra ára.

Umhverfis- og skipulagsnefnd
Fram kom listi yfir tilnefningar frá listum D, E og L í umhverfis- og skipulagsnefnd sem er svohljóðandi:

Aðalmenn:
Andri Rúnar Sigurðsson, D-lista - formaður
Jóna Kristbjörg Stefánsdóttir, D-lista
Ingþór Guðmundsson, E-lista - varaformaður
Gísli Stefánsson, L-lista

Varamenn:
Magnús G. Jónsson Núpan, D-lista
Inga Sigrún Baldursdóttir, D-lista
Guðmundur Kristinn Sveinsson, E-lista
Eðvarð Atli Bjarnason, L-lista

Fram kom listi yfir tilnefningu frá A-lista í umhverfis- og skipulagsnefnd sem er svohljóðandi:

Aðalmaður: Bergur B. Álfþórsson
Varamaður: Gunnar J. Helgason

Fræðslunefnd
Fram kom listi yfir tilnefningar frá listum D, E og L í fræðslunefnd sem er svohljóðandi:

Aðalmenn:
Hulda Blöndal, D-lista - varaformaður
Karel Atli Ólafsson, D-lista
Eva Björk Jónsdóttir, E-lista - formaður
Anna Karen Gísladóttir, L-lista

Varamenn:
Súsanna Tómasdóttir, D-lista
Högni Ólafsson, D-lista
Linda Dögg Arnarsdóttir, E-lista
Snædís Ósk Guðjónsdóttir, L-lista

Fram kom listi yfir tilnefningu frá A-lista í fræðslunefnd sem er svohljóðandi:
Aðalmaður: Petra Rut Rúnarsdóttir
Varamaður: Elfa Marita Ágústsdóttir

Frístunda- og menningarnefnd
Fram kom listi yfir tilnefningar frá listum D, E og L í frístunda- og menningarnefnd sem er svohljóðandi:

Aðalmenn:
Kristín Arna Hjaltadóttir, D-lista - formaður
Sigurður Rafn Vignisson, D-lista
Eva Björk Jónsdóttir, E-lista - varaformaður
Berglind Petra Jóhannsdóttir, L-lista

Varamenn:
Róbert Andri Drzymkowski, D-lista
Árni Grétar Torfason, D-lista
Adrian Krawczuk , E-lista
Guðni Oddgeirsson, L-lista

Fram kom listi yfir tilnefningu frá A-lista í frístunda- og menningarnefnd sem er svohljóðandi;
Aðalmaður: Hilmar Ólafsson
Varamaður: Nanna Lovísa Zophoniasdóttir

Fjölskyldu- og velferðarnefnd Suðurnesjabæjar
Aðaláheyrnarfulltrúar: Tinna Magnúsdóttir og Hulda Blöndal
Varaáheyrnarfulltrúar: Eva Björk Jónsdóttir og Kristín Arna Hjaltadóttir

Kjör í kjörstjórn og ungmennaráð frestað.

Þá komu fram tilnefningar í stjórnir, samstarfsnefndir og ráð til fjögurra ára nema annað sé tekið fram varðandi hverja nefnd.

Almannavarnarnefnd Suðurnesja
Aðalmaður: Kristinn Björgvinsson
Varamaður: Birgir Örn Ólafsson

Heilbrigðisnefnd Suðurnesja
Aðalmaður: Eðvarð Atli Bjarnason
Varamaður: Hólmgrímur Rósenbergsson

Brunavarnir Suðurnesja
Aðalmaður: Guðmann Rúnar Lúðvíksson
Varamaður: Eðvarð Atli Bjarnason

Stjórn Kölku sorpeyðingarstöðvar sf.
Aðalmaður: Ingþór Guðmundsson
Varamaður: Friðrik Valdimar Árnason

Reykjanes jarðvangur ses.
Aðalmaður: Björg Ásta Þórðardóttir
Varamaður: Magnús G. Jónsson Núpan

Fulltrúar á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga
Aðalmenn: Guðmann Rúnar Lúðvíksson og Birgir Örn Ólafsson
Varamenn: Kristinn Björgvinsson og Hulda Blöndal

Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
Aðalmaður: Björg Ásta Þórðardóttir
Varamaður: Birgir Örn Ólafsson

Fulltrúaráð Brunabótafélags Íslands
Aðalmaður: Birgir Örn Ólafsson
Varamaður: Björg Ásta Þórðardóttir

Öldungaráð Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga
Aðalmaður: Hólmgrímur Rósenbergsson
Varamaður: Inga Rut Hlöðversdóttir

Til máls tóku: GJH, BÁÞ

Bókun:
Kjör í umhverfis- og skipulagsnefnd tekur ekki gildi fyrr en við birtingu samþykktar um stjórn Sveitarfélagsins Voga, með áorðnum breytingum, í Stjórnartíðindum.

Afgreiðsla bæjarstjórar:
Aðrar tilnefningar komu ekki fram og skoðast þau því rétt kjörin.

Forseti tók fundarhlé kl. 18:05

Fundur hefst aftur kl. 18:14

8.Ráðning bæjarstjóra kjörtímabilið 2026-2030

2606013

Meirihlutinn leggur fram ráðningarsamning við Björgu Ástu Þórðardóttur sem bæjarstjóra Sveitarfélagsins Voga fyrir kjörtímabilið 2026-2030.

Frestunartillaga A-lista:
Fulltrúar A-listans krefjast þess að mál nr. 8 og 9 á dagskrá fundarins verði frestað vegna verulegs galla í fundarboði. Þar sem fylgigögn í þessum málum bárust ekki fyrr en rúmlega sólarhring fyrir fund.
Í 12. gr. sveitarstjórnarlaga segir: "Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara" og í 15. gr. segir "Fundarboði skal fylgja dagskrá fundarins og þau gögn sem eru nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind".
Í ljósi þess að fylgigögn í máli nr. 8 og 9 bárust tæpum þremur sólarhringum seinna en lög gera ráð fyrir fara fulltrúar A-listans fram á að þeim verði frestað svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun í málunum.

Til máls tóku: GJH, BÖÓ

Frestunartillaga A-lista er borin upp til samþykktar:
Tillagan er felld með 5 atkvæðum meirihluta gegn 2 atkvæðum minnihluta.

Lagt er til framlagður ráðningarsamningur verði samþykktur og felur forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

Til máls tóku: GJH, BÖÓ

Ráðningarsamningurinn er borinn upp til samþykktar:
Ráðningarsamningurinn er samþykktur með 5 atkvæðum meirihluta gegn 2 atkvæðum minnihlta.

Bókun A-lista:
A-listinn vill óska Björgu Ástu Þórðardóttur til hamingju og bjóða hana velkomna til starfa með ósk um gott og farsælt samstarf á kjörtímabilinu.


Bókun D, E og L: Við útfærslu samningsins var tekið tillit til þess að bæjarstjóri gegnir jafnframt starfi bæjarfulltrúa og fær kjör samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins um kjör kjörinna fulltrúa. Heildargreiðslur frá sveitarfélaginu samkvæmt samningnum, að teknu tilliti til fastra bæjarfulltrúalauna, ökutækjastyrks og áætlaðra fundarlauna bæjarstjórnar, eru um 3% lægri en kjör fráfarandi bæjarstjóra.

Þá er horfið frá vísitölutengingu grunnlauna og ökutækjastyrks og skulu laun taka breytingum í samræmi við almennar launabreytingar samkvæmt gildandi kjarasamningi.
Samningurinn tekur mið af því að sami einstaklingur gegnir bæði starfi bæjarstjóra og bæjarfulltrúa og felur í sér lægri heildargreiðslur fyrir sveitarfélagið en ella hefði orðið ef greidd væru óbreytt kjör fráfarandi bæjarstjóra samhliða kjörum annars bæjarfulltrúa.

Lagt er til framlagður ráðningarsamningur verði samþykktur og felur forseta bæjarstjórnar og formanni bæjarráðs að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins


9.Viðaukar 2026

2604032

Lögð fram tillaga að viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun 2026 vegna kaupa og uppsetningu á færanlegum kennslustofum fyrir Heilsuleikskólann Suðurvelli.

Frávísunartillaga A-lista:
Fulltrúar A-listans krefjast þess að mál nr. 8 og 9 á dagskrá fundarins verði frestað vegna verulegs galla í fundarboði.Þar sem fylgigögn í þessum málum bárust ekki fyrr en rúmlega sólarhring fyrir fund.
Í 12. gr. sveitarstjórnarlaga segir: "Fyrsta fund skal boða með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara" og í 15. gr. segir "Fundarboði skal fylgja dagskrá fundarins og þau gögn sem eru nauðsynleg til að sveitarstjórnarmenn geti tekið upplýsta afstöðu til mála sem þar eru tilgreind".
Í ljósi þess að fylgigögn í máli nr. 8 og 9 bárust tæpum þremur sólarhringum seinna en lög gera ráð fyrir fara fulltrúar A-listans fram a´að þeim verði frestað svo hægt sé að taka upplýsta ákvörðun í málunum.

Til máls tók: BÁÞ

Afgreiðsla Bæjarstjórnar:
Málinu er frestað og vísað til frekar vinnslu í bæjarráði.

Fundi slitið - kl. 18:30.

Getum við bætt efni síðunnar?