Malbikun við Reykjanesbraut mánudaginn 1. júlí.

Til viðbótar við kafla 8.0.40 er einnig stefnt á að fræsa og malbika kafla við Reykjanesbraut, ef veður leyfir, mánudaginn þann 1.júlí. Um er að ræða bæði hringtorg og ramp á mislægum gatnamótum við Voga. Vogavegi verður lokað og hjáleið um Vatnsleysustrandarveg.

Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani 8.0.44.

 

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 08:00 til kl. 16:00

 

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.