Lóðaúthlutun og sala byggingaréttar á Kirkjuholti

Sveitarfélagið Vogar auglýsir úthlutun og sölu byggingaréttar lóða á Kirkjuholti.  Sveitarfélagið leitar eftir tilboðum í byggingarrétt eftirfarandi lóða:

  • Aragerði 5
  • Tjarnargata 9
  • Tjarnargata 11 
  • Kirkjugerði 2-4

Tilboð í byggingarétt þarf að berast í lokuðu umslagi merkt „Kirkjuholt – parhúsalóð“ eða „Kirkjuholt – fjölbýlishúsalóð“ eftir því sem við á, Tilboð þurfa að berast á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga fyrir kl: 12:00 þann 18. mars 2024 og skulu gilda í fjórar vikur frá opnun tilboða. Tilboð verða opnuð og tekin fyrir á fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga sem hefst kl. 17:30 miðvikudaginn 20. mars 2024.

Skilmála fyrir úthlutun og sölu byggingaréttar lóða á Kirkjureit má finna hér.

Kynningu á svæðinu má nálgast hér.

Skipulagsuppdráttur Kirkjuholts má nálgast hér.

Skipulagsgreinargerð Kirkjuholts má nálgast hér.

Samþykkt um gatnagerðargjald má finna hér.


Nánari upplýsingar veitir byggingarfulltrúi í síma 440-6200 eða á netfangið: byggingarfulltrui@vogar.is