Forkynning á tillögu að deiliskipulagi - íbúabyggð ofan við Dali

Sveitarfélagið Vogar auglýsir forkynningu á tillögu að deiliskipulagi vegna fyrirhugaðrar íbúabyggðar ofan við Dali, nánar tiltekið svæði ÍB-5 í gildandi aðalskipulagi, í samræmi við 2. mgr. 30 gr. og 4. mgr. 40. skipulagslaga nr. 123/2010.

Svæðið er skilgreint sem íbúabyggð í gildandi aðalskipulagi en ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið. Viðfangsefni deiliskipulagsins er m.a. að skipuleggja lágreista íbúabyggð með allt að 250 íbúðum í sérbýlishúsum. Í deiliskipulaginu eru lóðir og byggingarreitir afmarkaðir ásamt því að skilgreint er fyrirkomulag gatna, stíga og sett þau ákvæði sem ástæða er til í deiliskipulagi. Lögð er áhersla á að lóðir og byggingar falli sem best að landslagi og eru skilmálar settir varðandi slíkt í deiliskipulagi.

Deiliskipulagsuppdrátt má nálgast hér

Greinargerð deiliskipulags má nálgast hér

Opið hús verður hjá skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofu að Iðndal 2, 190 Vogum 12. júlí 2023 milli kl. 13:00 – 16:00 þar sem íbúum og hagsmunaaðilum gefst kostur á að kynna sér tillöguna.

Íbúar og hagsmunaaðilar geta sent inn ábendingar varðandi tillögurnar á bæjarskrifstofu að Iðndal 2, 190 Vogum, eða á netfangið byggingarfulltrui@vogar.is til og með 7. ágúst 2023.

Skipulags- og byggingarfulltrúi