Fimmtudagsfræðsla í Álfagerði hefur farið afar vel af stað og er skemmtileg viðbót við félagslífi eldri borgara í sveitarfélaginu. Oktavía Ragnarsdóttir, Día, heldur utan um fræðsluna í samstarfi við verkefnið Saman í samfélagi og Heilsueflandi samfélag.
Á fyrsta viðburðinum kom Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, sviðsstýra fjölskyldusviðs, og kynnti fyrir eldri borgurum þá þjónustu og stuðning sem sveitarfélagið veitir sínum góðborgurum. Þar kom margt mikilvægt fram, meðal annars að í boði er 50 þúsund króna frístundastyrkur sem ætlaður er til heilsueflingar og þátttöku í félagsstarfi. Einnig var farið yfir tekjutengdan afslátt af fasteignagjöldum, frían aðgang að sundi og bókasafni sem og afslátt í líkamsræktarsal. Þá geta eldri borgarar einnig keypt sér hádegisverð í Álfagerði sem sveitarfélagið niðurgreiðir. Auk þess er heilmikil og fjölbreytt starfsemi í boði í Álfagerði, eins og sjá má á bæklingi félagsstarfsins. Boðið var upp á glæsilegar smurbrauðstertur frá Kvenfélaginu Fjólu sem vöktu mikla lukku og stemningin var notaleg.
Síðasta fimmtudag kom síðan Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur og flutti einstaklega fróðlegt og skemmtilegt erindi um næringu og hreyfingu fyrir fólk á besta aldri. Að venju lagði Día sitt af mörkum til góðrar stemningar og bauð upp á orkuskot og vefjur sem féllu vel í kramið hjá gestum.
Fimmtudagsfræðslan heldur áfram alla fimmtudaga kl. 15:00 í Álfagerði og er auglýst á Facebook-síðunni Álfagerði félagsstarf. Þótt þátttakan hafi verið góð frá upphafi er alltaf pláss fyrir fleiri. Það væri dásamlegt ef fólk myndi hnippa í nágranna, vini og kunningja og hvetja þau til að koma. Sérstaklega er ástæða til að minna á innflytjendur og nýbúa sem eru 60 ára og eldri, þau eru hjartanlega velkomin.
Því fleiri, því skemmtilegra!
Félagsstarf Álfagerðis á Facebook


