
Félagsstarf eldri borgara er þónokkuð í Sveitarfélaginu Vogum. Nú á dögunum voru þeir tímar sem í boði eru teknir saman og settir upp í formi bæklings.
Þar kennir ýmissa grasa og má þar nefna bridge, prjónahitting, smíðastofu, stólaleikfimi, sundleikfimi og félagsvist. Þá er samstarf við Íþróttamiðstöð og Félagsmiðstöðina Boruna. Til dæmis er opinn göngutími í íþróttamiðstöð daglega frá kl. 11:00 – 11:40 og billjard og píla í félagsmiðstöðinni einnig daglega og hægt að koma á tímabilinu kl. 06:00 til 13:00.
Þá fá allir eldri borgarar frítt í sund, afslátt af korti í ræktina og eiga kost á 50.000 kr. frístundastyrk árlega til íþrótta- og tómstundaiðkunar.
Auk þess er starfsemi hjá Félagi eldri borgara í Vogum heilmikil og ýmis önnur starfsemi sem auglýst er sérstaklega.
Við hvetjum öll til að taka þátt í þessu góða félagsstarfi.
Upplýsingabæklingur félagsstarfs eldri borgara 2026
