Auglýsing um skipulagsmál

Sveitarfélagið Vogar auglýsir forkynningu á tillögu að breytingu á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi við Kirkjuholt í samræmi við 2. mgr. 30 gr. og 4. mgr. 40. skipulagslaga nr. 123/2010.

Fyrirhugað er að koma fyrir nokkrum íbúðarlóðum þar sem gert er ráð fyrir sérbýlis- og fjölbýlishúsum á 1-2 hæðum.

Breyta þarf aðalskipulagi vegna breytinga á landnotkun. Viðfangsefni deiliskipulagsins er m.a. að afmarka lóðir og byggingarreiti ásamt því að skilgreina fyrirkomulag aðkomu og setja þau ákvæði sem ástæða er til í deiliskipulag.

Aðalskipulagsbreytingu má nálgast hér

Deiliskipulagsuppdrátt má nálgast hér

Greinargerð deiliskipulags má nálgast hér

Opið verður hjá skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrifstofu að Iðndal 2, 190 Vogum miðvikudaginn 22. mars 2023 milli kl. 13:00 – 16:00 þar sem íbúum og hagsmunaraðilum gefst kostur á að kynna sér tillögurnar.

Íbúar og hagsmunaaðilar geta sent inn ábendingar varðandi tillögurnar á bæjarskrifstofu að Iðndal 2, 190 Vogum, eða á netfangið byggingarfulltrui@vogar.is fyrir 29. mars 2023.

Skipulags- og byggingarfulltrúi