Á 251. fundi bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga var samþykkt að stofna Voganeistann, nýjan framtakssjóð sem styður við frumkvæði, nýsköpun og samfélagsleg verkefni í sveitarfélaginu.
Markmið Voganeistans er að veita einstaklingum, félagasamtökum, óformlegum hópum og fyrirtækjum stuðning til að þróa hugmyndir og hrinda í framkvæmd verkefnum sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið í Sveitarfélaginu Vogum. Sjóðurinn á að vera aðgengilegur og hjálpa fólki að taka fyrstu skrefin frá hugmynd að veruleika.
Verkefnin geta meðal annars tengst menningu, listum, íþróttum, frístundastarfi, samfélagsþátttöku og nýsköpun. Við mat á umsóknum verður lögð áhersla á samfélagslegt gildi, raunhæfa framkvæmd og möguleika verkefna til áframhaldandi þróunar.
„Á bæjarstjórnarfundi í vikunni var með stofnun Voganeistans tekið stórt skref til að fjölga tækifærum fólks til að koma hugmyndum í framkvæmd í okkar sveitarfélagi. Voganeistinn á að styðja við frumkvæði og góðar hugmyndir, samfélaginu til heilla. Vonandi verður sjóðurinn sá neisti sem hvetur fólk til að taka fyrsta skrefið og gefur hugmyndunum svigrúm til að vaxa,“ segir Björg Ásta Þórðardóttir, bæjarstjóri.
Við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins verður ákveðið hversu miklu fé verður varið til styrkja úr Voganeistanum og hver hámarksfjárhæð einstakra styrkja verður. Gert er ráð fyrir einni til tveimur úthlutunum á ári. Auglýst verður sérstaklega eftir umsóknum og nánari upplýsingar um umsóknarferlið birtar á vef sveitarfélagsins.