Vísindaveisla í Grindavík 12.-14. maí 2022

Vísindaveisla í Grindavík – fjör og fræði fyrir alla fjölskylduna

Vorið er komið og það þýðir Háskólest Háskóla Íslands rúllar af stað um landið og verður stödd í Grindavík dagana 12.-14.maí með fjölbreytta dagskrá í boði. Haldnar verða kennarasmiðjur og námskeið fyrir grunnskólanemendur, en dagskránni lýkur svo með sannkallaðri vísindaveislu fyrir allt samfélagið í Kviku, auðlinda- og menningarhúsi Grindavíkur, laugardaginn 14.maí kl.12-16. Þar býðst fjölskyldumeðlimum á öllum aldri að kynnast undrum vísindanna með gangvirkum og lifandi hætti í gegnum fjölbreytt tæki, tól og smiðjur. Verið hjartanlega velkomin – enginn aðgangseyrir!

Megin áherslan í starfi Háskólalestarinnar er á að kynna vísindi á lifandi og fjölbreyttan hátt fyrir ungu fólki, styðja við starf grunnskólanna og efla tengsl við landsmenn á öllum aldri. Í áhöfn lestarinnar eru kennarar og nemendur við Háskóla Íslands, sem flestir hverjir eru líka leiðbeinendur í Vísindasmiðju HÍ og Háskóla unga fólksins.

Auk námskeiðanna fyrir unga fólkið verður sú nýjung í Háskólalestinni að þessu sinni að sérstakar kennarasmiðjur verða í boði fimmtudaginn 13.maí fyrir alla kennara á Suðurnesjum. Vísindasmiðja Háskóla Íslands hefur undanfarin ár boðið kennurum í fjölbreyttar smiðjur, með áherslu á verklega fræðslu og tilraunir. Mikil eftirspurn hefur verið eftir endurmenntun af þessu tagi og nú verða valdar smiðjur í boði fyrir kennara á landsbyggðinni. Stefnt er á að gera þessa þjónustu að föstum lið í Háskólalestinni.

Háskólestin hefur heimsótt hátt á fjórða tug áfangastaða um allt land og fengið einstaklega hlýjar móttökur hvert sem komið er. Það er því alltaf mikið tilhlökkunarefni að hefja ferðina ár hvert með fjölbreytta fræðslu í en allt starf lestarinnar er skipulagt í nánu samstarfi við sveitarfélög og skóla hvers áfangastaðar.

Það má því með sanni segja að tilhlökkun sé í lofti fyrir fjölbreyttri fræðslu Háskólalestarinnar í frábærum félagsskap ungu kynslóðarinnar.