Nú stendur yfir vinna við Sóknaráætlun Suðurnesja 2025-2030 á vegum Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem ætlað er að vera leiðarljós í uppbyggingu Suðurnesja á tímabilinu og af því tilefni hefur verið boðað til opinnar vinnustofu í Hljómahöll föstudaginn 7. febrúar kl. 10 - 12:00.
Þar gefst íbúum kostur á að koma á framfæri sínum hugmyndum og eiga samtal um framtíðaruppbyggingu Suðurnesja.
Sóknaráætlunin er grundvöllur allrar vinnu Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum á næstu fimm árin og mun til dæmis stýra ákvörðun um val á áhersluverkefnum og úthlutun styrkja úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.
Markmiðið er jafnframt að einfalda samskipti ríkis og sveitarfélaga og tryggja gagnsæi við úthlutun og umsýslu opinberra fjármuna. Þetta verklag og það traust sem ríkisvaldið sýnir með þessu fyrirkomulagi er ákaflega valdeflandi og tilmikillar fyrirmyndar.
Þetta byggir á þeirri framtíðarsýn að þeir fjármunir sem Alþingi ráðstafar hverju sinni af fjárlögum til verkefna í einstökum landshlutum á sviði atvinnumála, byggða- og samfélagsþróunar byggi á sóknaráætlunun hvers landshluta og renni um einn farveg á grundvelli samnings til miðlægs aðila í hverjum landshluta.
Þeim sem ekki komast á vinnustofuna gefst kostur á að skila inn hugmyndum á vef SSS, sss.is en drög áætlunarinnar verða jafnframt send í samráð á island.is þar sem íbúum gefst kostur á að skila inn áliti,
Hér er slóð á skráningu á fundinn