Vinnustofa í umsóknarskrifum

Heklan býður frumkvöðlum á Suðurnesjum á vinnustofu í umsóknarskrifum þar sem m.a. verður horft til umsókna í Tækniþróunarsjóð sem er einn stærsti styrktarsjóður landsins. Næsti skilafrestur fyrir Vöxt/Sprett og Sprota er 15. mars 2021, og getur styrkur numið allt að 50 mkr. yfir 2 ár. Það er því til mikils að vinna!

Vinnustofan er þannig upp byggð að fyrst horfa þátttakendur á 3 klst netnámskeið Senza í Rannís skrifum, og byrja um leið að skrifa eigin umsókn, sjá nánar

Síðan hittumst við á Zoom í tveimur æfingatímum með leiðbeinanda, 15. febrúar kl. 9 – 10:30 og 22. febrúar kl. 9 – 10:30 þar sem gefst færi á að spyrja nánar og fara ítarlega í þætti sem þátttakendur hafa rekið sig á í upphafi skrifa.

Á vinnustofunni verður farið yfir raunverulegar umsóknir sem hafa fengið styrk, uppbyggingu umsókna, orðalag trix og tækni sem byggir á áratuga reynslu en leiðbeinandi er Einar Sigvaldason hjá Senza. Ráðgjafar Heklunnar veita einnig ráðgjöf á vinnustofunni og verða þátttakendum innan handar. Að lokum munum við fá nokkra frumkvöðla í heimsókn sem segja frá sínum umsóknarskrifum og miðla úr viskubrunni sínum.

Netnámskeiðið sem þátttakendur fá aðgang að gildir fram yfir umsóknarfrest í mars 2021 og aftur í 2 mánuði fyrir næstu tvo umsóknarfresti í september 2021 og febrúar/mars 2022. Þá fylgir vinnustofunni gagnabanki og aðgangur að lokuðum FB hóp þar sem þátttakendur geta hjálpast að. Þá munu valin verkefni fá einkaráðgjöf hjá leiðbeinanda.

INNIFALIÐ:

23 video bútar á vefsvæði Teachable, umsókn brotin niður eftir spurningum.

Glærur úr fyrirlestri settar undir hvern videobút, til að auka lesanleika.

Excel skjöl til niðurhals úr tveimur umsóknum, hjálparskjal excel úr einni umsókn.

Rafræni hlutinn á PDF formi.

Word hjálparskjöl fyrir rafræna hluta fylgja með s.s. CV, samningar við auglýsendur, samstarfsaðila og verktaka, kaupréttarsamningur, uppkast að notendaviðmóti og viðhengi fyrir tæknilegt nýnæmi

VERÐ:

Alls kr. 7.800

– Ofangreint verð er niðurgreitt af Heklunni og ætlað skjólstæðingum hennar.
– Athugið að að auki veita mörg stéttarfélög styrk fyrir allt að 90% af netnámskeiðum.

Nánari upplýsingar veitir dagny@heklan.is.

https://heklan.is/frettir/vinnustofa-i-umsoknarskrifum/