Vinnuskólinn - opið fyrir umsóknir

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vinnuskólann. Áherslur vinnuskólans verða með sambærilegu sniði og síðustu tvö ár. Kennslu og fræðslu hefur verið gefið aukið vægi og þá einkum fræðsla um réttindi og skyldur á vinnumarkaði, skyndihjálp, vinnuöryggi, umhverfisfræðslu og jákvæð samskipti. Er þetta gert með það að leiðarljósi að þátttakendur vinnuskólans komi betur undirbúnir út í atvinnulífið sem og til að auka gæði þeirrar starfsemi sem fram fer innan vinnuskólans. 

Breyting hefur verið gerð á fyrirkomulagi vinnuskólans með það að leiðarljósi að koma til móts við óskir úr samfélaginu. Í ár verður því fyrirkomulagið með þeim hætti að tvö tímabil verða fyrir 2011 og 2010 árgangangana og geta nemendur valið hvort tímabilið hentar betur. Við hvetjum þá sem eru með plön fyrir sumarið að sækja um sem fyrst til að tryggja sér pláss á því tímabili sem hentar best. 2009 árgangurinn mun áfram vera með eitt samfleytt tímabil.

Umsóknir fyrir Vinnuskólann skilast á rafrænu formi í gegnum íbúagátt sveitarfélagins. Á umsóknarforminu þarf að haka við hvaða tímabil er valið og eins hvort nota eigi skattkort, ef við á. Einnig þarf að haka við hvort birta megi myndir af krökkunum við störf sín í vinnuskólanum. Eingöngu er um að ræða myndbirtingar á miðlum sveitarfélagsins þar sem fjallað er um leik og starf vinnuskólans og er ávallt gætt fyllstu varðúðar, nærgætni og góðs siðferðis.

Hér má nálgast handbók vinnuskólans 2025.