Vinnuskólinn auglýsir eftir flokkstjórum

Vinnuskólinn leitar að flokksstjórum til að starfa við skólann sumarið 2024. Starfstímabilið er frá 13. maí til 16. ágúst. Æskilegt er að umsækjendur hafi náð 20 ára aldri og hafi ríka þjónustulund og séu sjálfstæðir.

Flokkstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi, ástundun og góðri umgengni starfsmanna. Flokkstjórar vinna með unglingunum og sýna þeim hvernig staðið skal að verki og leiðbeina um notkun á áhöldum og tækjum.

Nánari upplýsingar um starf flokkstjóra veitir Hanna Lísa Hafsteinsdóttir, verkefnastjóri á umhverfis- og skipulagssviði í síma 440-6200 eða Elsa Lilja Hermannsdóttir, yfirflokkstjóri í síma 855-6234.

Umsóknir sendist rafrænt á vinnuskoli@vogar.is fyrir 2. maí næstkomandi.