
Bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga hefur tekið upp nýtt fyrirkomulag sem gerir íbúum kleift að bóka viðtalstíma á einfaldan og aðgengilegan hátt. Viðtalstímarnir fara fram á miðvikudagsmorgnum og standa íbúum til boða í þremur mismunandi formum.
Hægt er að velja um hefðbundið símtal, fjarfund eða fund á bæjarskrifstofum, eftir því sem hentar hverjum og einum best. Markmiðið með breytingunni er að auka aðgengi íbúa að bæjarstjóra og auðvelda samskipti við sveitarfélagið.
Með þessu skrefi vonast sveitarfélagið til að efla samtal við íbúa og bregðast betur við ábendingum og erindum þeirra.