Vel mætt á áramótabrennu

Um leið og við óskum Vogabúum sem og öðrum landsmönnum gleðilegs nýs árs, þá viljum við þakka fyrir frábæra mætingu á áramótabrennu sveitarfélagsins. Mætingin fór fram úr björtustu vonum og var mjög ánægjulegt að sjá hve margir lögðu leið sína inná Vatnsleysuströnd. Við vonum að allir hafi notið sín og haft gaman af.

Að baki svona brennu liggur mikil vinna. Til þeirra sem lögðu hönd á plóg viljum við senda kærar þakkir fyrir framlagið.

Í ljósi áhugans þá kemur til greina að halda áramótabrennu aftur að ári og jafnvel gera enn meira úr viðburðinum. Hvað finnst bæjarbúum um að gera þetta að árlegri hefð á ný?