Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Sveitarfélaginu Vogum

Nú er hægt að greiða atkvæði utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 2022 á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga. Kjósendur eru minntir á að muna eftir að hafa með sér persónuskilríki. 

Hægt er að kjósa á opnunartíma skrifstofunnar sem er mánudaga til fimmtudaga frá 8.30 - 15.30 og á föstudögum frá 8.30 - 12.30.

Athugið að ekki verður hægt að greiða atkvæði á skrifstofunni föstudaginn 13. maí