Upptökur fyrir sjónvarpsþáttaröð HBO

Í dag standa yfir tökur á sjónvarpsþætti sem kvikmyndaframleiðandinn HBO vinnur að og fara þær að hluta til fram innan Sveitarfélagsins Voga. Er þetta stærsta kvikmyndaverkefni sem tekið hefur verið upp á Íslandi til þessa en eins og íbúar hafa eflaust margir orðið varir við er mikill fjöldi fólks sem er að störfum í tengslum við upptökurnar.  Gert er ráð fyrir að tökur muni standa yfir í 1-2 daga. Biðjum við íbúa og sérstaklega vegfarendur um Vatnsleysustrandaveg að sýna sérstaka aðgát og tillitssemi á meðan tökum stendur.