Við reglubundið eftirlit með neysluvatni í Vogum hafa greinst kólígerlar í sýnum úr dreifikerfi sveitarfélagsins. Ekki er um alvarlegt frávik að ræða og að mati Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja er ekki ástæða til sérstakra ráðstafana af hálfu íbúa eða fyrirtækja, sem þurfa því ekki að sjóða neysluvatn.
Frumniðurstöður sýnatöku við reglubundið eftirlit gáfu tilefni til frekari sýnatöku. Í kjölfarið voru tekin þrjú sýni til viðbótar, tvö úr dreifikerfinu og eitt úr vatnsbólinu. Kólígerlar greindust í sýnunum úr dreifikerfinu en ekki í sýninu úr vatnsbólinu. E. coli-bakteríur greindust ekki í sýnunum.
Kólígerlar eru umhverfisbakteríur sem meðal annars finnast í jarðvegi, en sumar tegundir þeirra geta einnig vaxið í neysluvatnslögnum. Tilvist þeirra í neysluvatni kallar á leit að orsökum og úrbætur í samræmi við það.
Þótt niðurstöðurnar kalli ekki á sérstakar ráðstafanir íbúa telur sveitarfélagið rétt að upplýsa um stöðuna og þær niðurstöður sem liggja fyrir. Sveitarfélagið vinnur í nánu samstarfi við HS Veitur, rekstraraðila vatnsbólsins og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja að því að fylgja niðurstöðunum eftir. Vikuleg sýnataka verður næstu vikur og jafnframt verður unnið að því að kanna mögulegar ástæður þess að kólígerlar hafa greinst í sýnum úr neysluvatninu og nauðsynlegum úrbótum.
Hér er hlekkur inn á vefsíðu sem heldur utan um niðurstöður úr sýnatökum á neysluvatni: https://www.hsveitur.is/um-hs-veitur/utgefid-efni/skjalasafn/neysluvatnssyni
Sveitarfélagið mun áfram upplýsa íbúa um framvindu málsins og niðurstöður frekari sýnatöku.