Ungur nemur - gamall temur

Hefð er fyrir góðu, gjöfulu og nærandi samstarfi Heilsuleikskólans Suðurvalla og eldri borgara í Vogum.

Hóparnir hittast í Álfagerði sem hýsir félagsstarf eldri borgara, og er gengt leikskólanum, þar sem forláta smíða- og föndurstofur styðja sérlega vel við samstarfið.

Þar sem kynslóðir mætast verður til ómetanleg samvera og öll læra og njóta góðs af.

Ekki var verra að Día, umsjónarkona félagsstarfs eldri borgara, galdraði fram gómsætt kex og ljúfa drykki þegar börn og fullorðnir voru búin að hengja upp fuglana fallegu og opna sýninguna formlega.

Allir íbúar eru velkomnir að kíkja við og skoða, sjón er sögu ríkari.